Lífið

Tvöfalt brjóstnám hjá Anastacia

Söngkonan Anastacia hefur gengist undir tvöfalt brjóstnám eftir að hún greindist með brjóstakrabbamein í annað sinn.

Í yfirlýsingu til aðdáenda sinna sagðist hún vera á batavegi og "tilbúin til að hefja nýjan kafla" í lífi sínu.

Anastacia aflýsti tónleikaferðalagi sínu um Evrópu í febrúar eftir að hún greindist í annað sinn.

Hin 45 ára söngkonan náði fullum bata árið 2003 eftir að hún gekkst undir skurðaðgerð og fór í geislameðferð vegna krabbameins.

Anastacia er þekktust fyrir lagið I´m Outta Love.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.