Samstarfsverkefni Barða í Bang Gang og JB Dunckel úr Air komið á fullt 3. október 2013 09:00 Mynd/Jeaneen Lund
Fyrsta tónlistarmyndband hljómsveitarinnar Starwalker verður frumsýnt á Íslandi á föstudaginn næsta á Vísi. Starwalker er samstarf hins íslenska Barða Jóhannssonar, oftast kenndur við Bang Gang, og JB Dunckel, eins forsprakka hinnar geysivinsælu rafhljómsveitar Air. Þeir gáfu út fyrsta lag sitt saman fyrr í vikunni, en lagið ber heitið Bad Weather og má hlusta á hér að neðan. „Myndbandið var allt tekið upp á Íslandi. Það var skotið af Sævari Guðmundssyni, sem leikstýrði því ásamt ljósmyndaranum Jeaneen Lund. Við erum mjög ánægðir með afraksturinn,“ segir Barði. Hljómsveitin Air nýtur mikilla vinsælda um allan heim en hún spilaði í Laugardalshöll árið 2007. Önnur breiðskífa hennar, Moon Safari, fór mikinn á vinsældarlistum um allan heim, en hljómsveitin gat sér einnig gott orð fyrir að semja tónlist við mynd Sofiu Coppola, The Virgin Suicides. Barði og Dunckel kynntust fyrir tilstilli sameiginlegrar vinkonu í París auk þess sem Bang Gang hitaði upp fyrir Air á tvennum tónleikum í Frakklandi fyrir nokkrum árum. „Við höfum verið að hittast og semja í kannski eitt og hálft ár. Þetta hefur verið langt ferli, en skemmtilegt. Samstarfið gengur rosalega vel,“ segir Barði. „Planið er núna að gefa út fjögurra laga smáskífu í febrúar og svo stefna á að klára fulla plötu á næsta ári,“ segir Barði að lokum.
Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fleiri fréttir Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Sjá meira