Þessi vefur er snilld Ellý Ármanns skrifar 3. október 2013 13:00 Gígja Gunnarsdóttir.
Hreyfitorg er snjallvefur, forritaður af Hugsmiðjunni, sem aðlagar sig sjálfkrafa að skjástærðinni hverju sinni eins og til dæmis á snjallsíma, spjaldtölvu eða stærri tölvu. Embætti landlæknis hafði umsjón með uppbyggingu Hreyfitorgs en Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur nú tekið við umsjón vefsins. Aðrir aðstandendur vefsins eru Félag sjúkraþjálfara, Íþróttakennarafélag Íslands, Læknafélag Íslands, Reykjalundur, Ungmennafélag Íslands og VIRK starfsendurhæfingarsjóður. Gígja Gunnarsdóttir verkefnastjóri hreyfingar hjá Embætti landlæknis fræddi okkur um vefinn.Hreyfitorg - hvad er þad og fyrir hverja? „Kannanir benda til að stór hluti landsmanna, á öllum aldri, sé ekki að hreyfa sig nóg. Það er vel þekkt að hreyfing með öðrum getur verið góður stuðningur fyrir einstaklinga að byrja að hreyfa sig reglulega og viðhalda slíkum lífsháttum," segir Gígja. „Hreyfitorgi er ætlað að auðvelda fólki á öllum aldri, hvar sem er á landinu að finna á einum stað upplýsingar um hreyfingu sem samræmist getu og áhuga hverju sinni og stuðlar að heilbrigði og vellíðan. Á þetta við hvort sem fólk er að leita eftir þjónustu fyrir sig sjálft eða fyrir aðra eins og til dæmis foreldrar fyrir börn sín eða fagfólk fyrir skjólstæðinga." „Hreyfitorgi er þannig ætlað að styðja við uppbyggingu kerfis um ávísun á hreyfingu, svonefnds Hreyfiseðils. Þjónustuaðilar sem bjóða upp á skipulagða hreyfingu sem samræmist markmiðum Hreyfitorgs geta sótt um að kynna sína þjónustu á vefnum, sér að kostnaðarlausu. Til að forðast birtingu úreldra upplýsinga fá þeir reglulega áminningu um að endurskoða skráninguna." Áhersla lögð á hreyfingu „Sérstök áhersla er lögð á að stuðla að auknu framboði á einfaldri og ódýrri hreyfingu sem flestir ættu að geta stundað. Sterkir aðilar standa að baki Hreyfitorgi sem hafa innan sinna raða öflugt net þjónustuaðila á sviði hreyfinga og góð tengsl við væntanlega notendur," segir Gígja.Þarfir fólks ólíkar „Hreyfitorg er að taka sín fyrstu skref en það er mjög ánægjulegt að sjá hvað skráningin er nú þegar fjölbreytt. Má þar sem dæmi nefna skógarjóga, íþróttaskóla fyrir fjölskylduna, líkamsrækt fyrir fólk sem hefur fengið heilablóðfall, bakleikfimi, bogfimi og margt fleira. Ég taldi mig vera nokkuð vel með á nótunum um það sem er í boði á sviði hreyfingar en er strax búin að fá upplýsingar um ýmislegt sem ég þekkti ekki til áður. Og það er frábært. Þarfir fólks eru svo ólíkar og því er mikilvægt að úrvalið sé sem fjölbreyttast. Til að endast í reglulegri hreyfingu er mikilvægt að fólk finni sína hreyfingu þ.e. hreyfingu sem því finnst skemmtileg og er hæfilega krefjandi." „Fjölbreytt úrval er sem fyrr segir af hinu góða en líkt og með aðra þjónustu er mikilvægt að neytendur séu duglegir að kynna sér málin og taka upplýsta ákvörðun til að velja hreyfingu sem samræmist þeirra þörfum. Að sama skapi þurfa þeir sem bjóða upp á skipulagða hreyfingu að vanda upplýsingagjöf og hafa viðeigandi forsendur til að standa fyrir þeirri þjónustu sem þeir bjóða upp á s.s. þekkingu, reynslu og aðstöðu. Hreyfitorgi er einmitt ætlað að auðvelda notendum og þjónustuaðilum að ná saman hvað þetta varða. Við hvetjum að sjálfsögðu alla til að smella sér inn á hreyfitorg.is hvort sem þeir vilja kynna eða finna sína hreyfingu."Hreyfitorg.isHreyfitorg.is
Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fleiri fréttir Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Sjá meira