Frá Barcelona í Kirsuberjatréð Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar 3. október 2013 10:00 Kolbrún Ýr Gunnarsdóttir vinnur nú að peysu- og kápulínu fyrir Kirsuberjatréð. Mynd/Pjetur
Ég hefði átt að vera komin með góðan skammt af sól eftir árin í Barcelona en samt var erfitt að flytja heim í rokið og rigninguna. En ég nýti mér það í sköpunina, verð inni í hlýjunni og hanna. Ég er að vinna nýja peysu- og kápulínu,“ segir Kolbrún Ýr Gunnarsdóttir fatahönnuður. Hún er nýflutt heim frá Barcelona þar sem hún var í námi í fatahönnun við IED. Kolbrún er gengin til liðs við Kirsuberjatréð á Vesturgötu og hefur komið sér upp vinnustofu. Auk peysa og kápa vinnur hún að skartgripalínu upp úr eldri skartgripum. „Ég hef verið dálítið upptekin af endurvinnslu en lokaverkefnið mitt í IED tengdist endurvinnslu húsgagna. Ég komst í svo mikið efni þarna úti en á Spáni er miklu meiri vitund um endurvinnslu en hér heima,“ segir Kolbrún. „Ég kláraði skólann fyrir ári og vann eftir það að tvennum fylgihlutalínum, svona meðfram því að njóta borgarinnar. Nú er ég að gera það sem mig hefur alltaf dreymt um, ekki að fjöldaframleiða heldur vinna hlutina sjálf, hægt og rólega. Þetta verður ein og ein flík í einu og líklega engin þeirra eins. Fólk verður bara að vera duglegt að koma við hjá mér og kíkja,“ segir Kolbrún. Áður rak Kolbrún verslunina Kow á Laugaveginum en segist hæstánægð með fyrirkomulagið í Kirsuberjatrénu. „Hugmyndin á bak við Kirsuberjatréð gengur út á að hönnuðirnir innan þess vinna allt sjálfir. Ég smellpassa inn í það fyrirkomulag. Verslunarrekstur sem slíkur er ekki endilega spennandi og það er því frábært að geta deilt honum með fleirum og hafa þá meiri tíma til að vera skapandi.“ Hægt er að forvitnast um hönnun Kolbrúnar á facebook.
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Lífið samstarf Fleiri fréttir „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Sjá meira