Prímadonna í aðalhlutverki í íslenskri auglýsingu Ólöf Skaftadóttir skrifar 3. október 2013 00:01 Mynd: Marteinn Einarsson „
Það var ýmislegt óvenjulegt við þessar tökur, til dæmis var mjög erfitt að fá tæki og mannskap og svo var aðahlutverkið dálítil prímadonna,“ segir Guðjón Jónsson, leikstjóri nýrrar auglýsingar fyrir tryggingafélagið Sjóvá, en auglýsingin var einnig óvenjuleg fyrir þær sakir að aðalhlutverkið leikur kötturinn Jói. „Jói er dálítil prímadonna og gefur manni eina töku þegar hann er tilbúinn. En við vorum á tánum og þetta tókst að lokum,“ segir Guðjón léttur í bragði. Tökur á auglýsingunni tóku fjóra hálfa daga. „Það má deila um það hvort Jói hafi látið vel að stjórn. Eftir fyrsta tökudaginn höfðum við gríðarlegar áhyggjur af stöðu mála, daginn eftir vorum við enn ekki komin með nægt efni. Þannig að æfingar héldu áfram í helgarfríi og við fórum vel yfir málin með Jóa og á þriðja tökudegi stóð hann sig frábærlega,“ segir Guðjón um aðalhlutverkið, en eigandi Jóa er Ásta hjá Gallerí Voff. Ýmislegt annað kom upp á við gerð auglýsingarinnar. „Myndavél og linsur voru flutt sérstaklega inn frá Danmörku því tækin sem við vildum nota á íslandi voru öll bókuð í erlendar bíómyndir,“ segir Guðjón. „Svo var ekki fáanlegur fyrsti ljósamaður eða gripill út af bókunum vegna erlendra bíómynda og við brugðum þá á það ráð að flytja inn menn frá Bretlandi. Svo ljósamaður og gripill voru þungavigtarmenn í faginu sem hafa áður unnið að myndum á borð við James Bond,“ segir Guðjón að lokum.
Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fleiri fréttir Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Sjá meira