Risalaxeldi má ekki hindra olíuleitarskip gar@frettabladid.is skrifar 30. janúar 2013 06:00 SJókvíar í ReyðarfirðiLaxar fiskeldi ehf. áforma að ársframleiðsla af eldislaxi í Reyðarfirði verði sextán þúsund tonn en segja fjörðinn geta borið 35 þúsund tonna framleiðslu. Kvíar verða beggja vegna fjarðarins „vel utan siglingaleiða“, segja forsvarsmenn fyrirtækisins.Mynd/Laxar fiskeldi.
Ef áform Laxa fiskeldis ganga eftir mun framleiðsla fyrirtækisins á eldislaxi í Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði verða ríflega tuttugu þúsund tonn á ári. Fyrirtækið hefur þegar starfsleyfi fyrir sex þúsund tonna framleiðslu í Reyðarfirði sem hefja á vorið 2014 en vill bæta tíu þúsund tonnum við. Í Fáskrúðsfirði vill fyrirtækið leyfi fyrir fjögur þúsund tonna ársframleiðslu. „Með auknu eldismagni skapast meira hagræði í rekstri, betri samkeppnisstaða og traustari grundvöllur fyrir starfsemina. Með tilkomu laxeldis af þessari stærðargráðu munu stoðir atvinnulífs í Fjarðabyggð styrkjast,“ segir í greinargerð Laxa fiskeldis. Skipulagsstofnun hefur óskað eftir áliti Fjarðabyggðar á því hvort framkvæmdin eigi að vera háð mati á umhverfisáhrifum. Sú umsögn er í vinnslu og verður lögð fram á bæjarstjórnarfundi á fimmtudag í næstu viku. Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri segir að þótt menn fagni allri nýrri atvinnustarfsemi þurfi að líta til fleiri þátta. „Við horfum til framtíðaruppbyggingar á hafnarstarfsemi á Reyðarfirði, ekki síst með þjónustu við olíuleitarfyrirtæki á Drekasvæðinu í huga. Það er því afar mikilvægt að sjókvíar verði ekki til að teppa siglingaleiðir í firðinum,“ nefnir Páll sem dæmi um þætti sem séu til skoðunar hjá heimamönnum. Í greinargerð Laxa fiskeldis segir um þetta að kvíunum sé valinn staður „vel utan siglingaleiða“. Landssamband veiðifélaga mótmælti á sínum tíma þegar sex þúsund tonna starfsleyfið var til umfjöllunar. Haft var eftir Óðni Sigþórssyni, formanni sambandsins, í ríkisútvarpinu í nóvember 2011 að eiga mætti von á því að einn lax úr hverju tonni myndi sleppa úr sjókvíunum. Þannig myndu sex þúsund laxar sleppa árlega og leita upp í ár til hrygningar. Um væri að ræða norskættaðan lax og menn óttuðust áhrif hans á íslenska laxastofna. Laxar efh. telja hins vegar ekki hættu á ferðum að þessu leyti. „Reynslan sýnir að í fullkomnustu kvíunum, sem eru sömu gerðar og Laxar ehf. munu nota, hefur enginn lax sloppið út,“ segir í greinargerð fyrirtækisins þar sem vísað er til þess að þegar mikið af eldislaxi og hafbeitarlaxi hafi gengið í Elliðaárnar á níunda og tíunda áratugnum hafi engin blöndun við náttúrulega stofninn þar greinst. Þar að auki séu engar laxveiðiár í Reyðarfirði.
Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Fleiri fréttir Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Sjá meira