Fjölskylda Sigmars segir að hann hafi gleymst 30. janúar 2013 19:48 Sigmar B. Hauksson beið heima í níu daga án þess að fá aðhlynningu eða verkjameðferð eftir að hann greindist með krabbamein í lok nóvember. Þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV. Þar segir að fjölskyldan telur að álag á sjúkrahúsinu hafi orðið til þess að hann hafi gleymst.
Sigmar B. Hauksson beið heima í níu daga án þess að fá aðhlynningu eða verkjameðferð eftir að hann greindist með krabbamein í lok nóvember. Þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV. Þar segir að fjölskyldan telur að álag á sjúkrahúsinu hafi orðið til þess að hann hafi gleymst. Eins og flestir vita þá var Sigmar ástríðufullur veiðimaður og matgæðingur og helst fannst honum að veiðimaðurinn ætti að elda sína bráð sjálfur. Það var því mjög óvenjulegt þegar hann sagði systkinum sínum í haust að hann treysti sér ekki í árlega rjúpnaferð fjölskyldunnar. Hann hélt að hann væri með flensu en fór til læknis þegar hann fór að gulna. Heimilislæknirinn sendi hann á bráðamóttökuna. „Þá kemur í ljós að hann er með æxli í ristlinum sem er búið að dreifa sér í lifrina," segir Guðrún B. Hauksdóttir, systir Sigmars, í viðtali við RÚV. Hann var lagður inn á meltingardeildina á Landspítalanum þar sem hann fór í aðgerð til að minnka guluna. Tveimur dögum síðar var hann útskrifaður og honum sagt að haft yrði samband við hann eftir nokkra daga þegar sérfræðingar væru búnir að fjalla um mál hans. Viku síðar var hringt í hann. Honum var sagt að þetta æxli í ristlinum væri ekki skurðtækt og að krabbameinsteymi spítalans komi til með að hafa samband við hann helgina eftir að hann fékk upplýsingarnar, að sögn systur hans. Mánudaginn 17. desember var fjölskyldunni svo nóg boðið. Næstum tuttugu dagar höfðu liðið frá því Sigmar hafði greinst með krabbamein og níu dagar frá því hann bjóst við símtali frá spítalanum. Einu verkjalyfin sem hann hafði fengið fram að þessu var parkódín sem hann fékk hjá meltingarlækninum. Fjölskyldan telur að hann hafi gleymst. Einar S. Björnsson, yfirlæknir á meltingardeild Landspítala, segir í samtali við RÚV að það sé aldrei hægt að skýla sér á bak við manneklu þegar um svona tilvik sé að ræða. „Nei, ég held að það sé alveg öruggt mál að við getum aldrei skýlt okkur bak við það að það sé mikið álag þegar um er að ræða sjúklinga með mjög svona vandmeðfarna og erfiða sjúkdóma eins og krabbamein," segir Einar í samtali við RÚV.Hægt er að lesa um málið á vefsíðu RÚV.
Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Innlent Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Innlent Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Innlent Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Innlent Fleiri fréttir Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Sjá meira