Fær Evrópudeildin Meistaradeildarsæti? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. maí 2013 22:45 Chelsea vann Evrópudeildina í ár en komst líka í Meistaradeildina í gegnum ensku úrvalsdeildina. Mynd/NordicPhotos/Getty
Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, mun tilkynna það á morgun, hvort að sigurvegarar í Evrópudeildinni vinni sér í framtíðinni sæti í Meistaradeildinni árið eftir. Þessi breyting er til umræðu sem hluti af þeirri viðleitni sambandsins að auka mikilvægi og áhuga á Evrópudeildinni. Evrópudeildin stendur eins og er Meistaradeildinni langt að baki hvað varðar tekjuöflun og vinsældir en Evrópudeildin var sett af stað í núverandi formi árið 2009. UEFA hefur verið að leita leiða til þess að auka áhuga á Evrópudeildinni og stórt skref í þá átt var að breyta nafni keppninnar úr UEFA-bikarnum í Evrópudeildina. Fari svo að Evrópudeildarmeistararnir vinni sér sæti í Meistaradeildinni árið eftir án þess að hafa verið í hópi þeirra liða sem tryggðu sér Meistaradeildarsæti í gegnum deildarkeppnina þá munu þeir ekki taka sætið af þeim liðum sem voru í fjórum/þremur/tveimur efstu sætunum í viðkomandi landi. Ein og sama þjóðin ætti því möguleika á að vera með fimm lið inn í Meistaradeildinni. UEFA ætlar að passa upp á það að sú staða komi ekki upp aftur eins og árið 2012 þegar Tottenham missti Meistaradeildarsæti sitt til Chelsea. Chelsea komst þá inn sem sigurvegari í Meistaradeildinni og tók þar með fjórða sætið af nágrönnum sínum. Ákveði ráðamenn í UEFA að innleiða þessa breytingu munu Evrópudeildarmeistararnir árið 2016 verða þeir fyrstu sem fá Meistaradeildarsæti að launum.
Evrópudeild UEFA Meistaradeild Evrópu Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Sjá meira