Tíu milljón króna skuld endaði hjá annarri fjölskyldu 29. janúar 2013 19:43 Mannlíf. Myndin tengist ekki fréttinni beint.
Ábyrgðarmenn hjóna sem fóru í greiðsluaðlögun hjá Umboðsmanni skuldara sitja eftir með skuldir þeirra, eða um tíu milljónir króna. Umboðsmaðurinn hefur ítrekað vakið athygli á þessum vanda. Það var ruv.is sem greindi frá málinu. Þar kemur fram að hjón með þrjú börn sóttu um greiðsluaðlögun hjá Umboðsmanni skuldara í maí 2010 og gengu frá samningi í lok nóvember á síðasta ári. Í ferlinu þurftu þau að selja íbúð sína. Eftir að samningur lá fyrir voru 80% krafna á hendur þeim felldar niður. Þeirra á meðal voru lán sem nánustu ættingjar þeirra voru í ábyrgðum fyrir. Þar sem lög um niðurfellingu skulda í greiðsluaðlögun ná ekki til ábyrgðarmanna sitja ættingjarnir nú eftir með skuldir hjónanna, alls um tíu milljónir króna. Móðir mannsins fékk áskorun frá lögmannsstofu á dögunum þar sem hún var krafin um rúmar fjórar milljónir króna. Hjónin segja að þau hafi aldrei grunað að þetta yrði niðurstaðan. Vandinn er tilkominn vegna þess að í nóvember 2010 komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að lög um ábyrgðarmenn í greiðsluaðlögun næðu ekki til skuldbindinga sem stofnað var til áður en lögin tóku gildi. Síðan eru liðin rúm tvö ár án þess að tekist hafi að finna lausn. Í bréfi Umboðsmanns skuldara til hjónanna í þessum mánuði segir að ítrekað hafi verið vakin athygli á þeim vanda sem blasir við í greiðsluaðlögun þar sem ábyrgðarmenn eiga hlut að máli. Í þriðjungi þeirra mála sem eru í vinnslu tryggi ábyrgðarmenn skuldir. Í ákveðnum tilfellum sé verið að færa skuldavandann yfir til ábyrgðarmanna. Greiðsluaðlögun geti því haft keðjuverkandi áhrif þannig að ábyrgðarmennirnir lendi í fjárhagskröggum og þurfi þá sjálfir að leita til Umboðsmanns skuldara.
Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Fleiri fréttir Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Sjá meira