„Best að hann fylgi því máli þá bara eftir“ Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 5. apríl 2013 15:06 Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ.
Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, kannast ekki við að hafa brotið stjórnsýslu eins og Friðjón Einarsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ, sakar hann um. Friðjón krefst afsagnar bæjarstjórans eða afsökunarbeiðni frá honum, og segir Árna hafa brotið stjórnsýslulög og samþykktir Reykjanesbæjar þegar hann ákvað að leggja ekki fyrir bæjarráð innsend drög að viljayfirlýsingu um uppbyggingu innviða í Helguvík og Reykjanesbæ frá Katrínu Júlíusdóttur, fjármála- og efnahagsráðherra, fyrir hönd Ríkistjórnar Íslands. „Ef hann telur mig hafa brotið stjórnsýslu þá er bara best að hann fylgi því máli þá bara eftir," segir Árni, og bætir því við að hann hafi ítrekað gert grein fyrir því að bæjarstjórnin væri að kalla eftir frumvarpi „en ekki einhverjum drögum". „Þessi svokölluðu drög að viljayfirlýsingu sneru að styrk til Reykjanesbæjar sem nemur hundrað milljónum. Slíkt er ekki svaravert, en við vorum líka að kalla eftir upplýsingum sem áttu að koma varðandi minnisblað ríkisstjórnarinnar. Það er sjálfsagt að að bæjarráðsmenn geti skoðað þetta í rólegheitunum ef þeir vilja, en ég held að það komi þessari ríkisstjórn ekkert við. Þetta sýnir fyrst og fremst málefnaþurrð Samfylkingarinnar í þessu máli. Það er til skammar hvernig að þessu hefur verið staðið og endar þá greinilega í þessari aðför." Auk þess að krefjast afsagnar Árna sagði Friðjón þetta ekki vera í fyrsta sinn sem hann verði „uppvís að slælegum vinnubrögðum". Árni segist ekki vita til hvers Friðjón vísar þar. „Það verða bara aðrir að skýra. Friðjón Einarsson er í minnihluta og kann vel að vera að honum líki ekki ýmislegt sem við erum að vinna. Ég sem oddviti meirihlutans og bæjarstjóri vinn bara í þágu bæjarfélagsins og legg mál fyrir eins og vera ber. Ef hann er ósáttur við að vita ekki eitthvað sem hann vill vita verður hann bara að eiga það við sig."
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira