Hafnar blómum sem hraðahindrun í Kjós 16. júlí 2013 07:00 Hér er Hrafnhildur ásamt dætrum sínum, þeim Aþenu Lind og Dögun París Morthens, við Meðalfellsveginn umrædda. Frettablaðið/Daníel „
Þessi vegur er stórhættulegur. Fólk keyrir gríðarlega hratt og áttar sig ekki á því að það er að keyra í gegnum þétta íbúðarbyggð þar sem er mikið af fólki og börnum að leik,“ segir Hrafnhildur Hafsteinsdóttir, íbúi við Meðalfellsveg í Kjós, sem hefur unnið að því síðan árið 2008 að komið verði upp hraðahindrunum við veginn. Í síðustu viku var ákveðið að koma fyrir blómapottum sitthvoru megin við sumarhúsabyggðina til þess að hægja á umferðinni en hönnunarskrifstofa Vegagerðarinnar samþykkti það ekki þegar til kastanna kom. Var í staðinn ákveðið að setja upp ljósaskilti og viðvörunarlínur. „Ég fagna því að það sé forvörn í gangi hjá hreppsnefndinni og Vegagerðinni. Það er svo oft sem það þarf að verða slys áður en það er gripið inn í,“ segir Hrafnhildur. Hún segist sjálf hafa verið hrifin af hugmyndinni um að nota blómapotta sem hraðahindrun en treysti Vegagerðinni ef hún telur að aðrar leiðir séu betur til þess fallnar að minnka hraða á svæðinu.Guðný G. ÍvarsdóttirGuðný Ingadóttir, sveitarstjóri Kjósarhrepps, sem hefur barist fyrir því með sumarhúsaeigendum og íbúum á svæðinu að fá hraðahindranir á veginn, átti hugmyndina að blómapottunum. „Þegar farið var með málið á hönnunarskrifstofuna hjá Vegagerðinni kom þetta ekki til greina. Þeir reikna með að þetta muni pirra fólk mikið og menn ýti pottunum út af.“ Hámarkshraðinn á veginum er 50 kílómetrar á klukkustund. „Fólk bara virðir það ekki,“ útskýrir hún. Til stóð að koma blómakerunum fyrir í þessari viku. Guðný vonar að ljósaskiltin og viðvörunarlínurnar sem Vegagerðin vill koma fyrir í staðinn verði sem fyrst sett upp.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Sjá meira