Léttist um 45 kg Ellý Ármanns skrifar 27. september 2013 16:30
Berglind Björgvinsdóttir 35 ára starfsmaður í íþróttahúsinu á Akranesi fór að þyngjast verulega upp úr aldamótunum. Þegar hún byrjaði á TT-námskeiði hjá Líkamsrækt JSB í janúar í fyrra var hún 126 kg. Í dag er Berglind búin að missa 45 kg og líf hennar hefur tekið algerum stakkaskiptum. Þökk sé JSB. „Þetta er mun meira en ég þorði að vona," segir Berglind, sem hefur ekki aðeins grennst heil ósköp, heldur hefur hún tekið gríðarlegum breytingum, ekki aðeins útlitslega heldur andlega líka að eigin sögn.Sannfærði sjálfa sig um áhugaleysi “Hér áður fyrr mótaðist viðhorf mitt að miklu leyti af því hvað ég treysti mér til að gera og hvað ekki. Þannig sannfærði ég til dæmis sjálfa mig og aðra um að ég hefði engan áhuga á fjallgöngum, hreinlega af því að ég vissi að ég gæti ekki stundað þær vegna offitu. Það var svona með fleiri hluti og þetta er umhugsunarvert þegar maður fer að telja sjálfum sér trú um að hugsanlega langi mann ekki til að gera eitt og annað bara vegna þess að offitan stendur í vegi fyrir því."Missti 30 kg á danska kúrnum„Ég missti til dæmis um 30 kg árið 2006 þegar ég fór á danska kúrinn. Þegar ég hætti svo á honum kom þetta allt til baka á tvöföldum hraða og ég þyngdist um 20 kg á einu ári. Mataruppeldi er það sem virkar Það er tekið allt öðru vísi á þessu á TT-námskeiðunum," útskýrir Berglind. „Danski kúrinn líkt og aðrir álíka miða við að vera stöðugt að neita sér um eitthvað og taka einhverja fæðutegund út. Hjá JSB fáum við aftur á móti eins konar mataruppeldi. Við lærum að prófa okkur áfram og finnum að við eigum ákveðið val. Ég get t.d. farið í afmæli og fengið mér kökusneið án þess að finnast ég hafa sprungið á kúrnum. Hérna fæ ég upplýsingar, fræðslu og stuðning þannig að ég get unnið í þessu verkefni mínu og lært á sjálfa mig.”Gott aðhald er málið „Fundirnir veita gott aðhald, líkamsræktin er frábær og kennararnir æðislegir. Allt umhverfið er mér vel að skapi. Ég finn allt í einu hvað það er gott að hreyfa sig,” segir hún og ljómar af heilbrigði. Það sem meira er, þá er Berglind farin að stunda fjallgöngur af kappi, fer reglulega á Akrafjallið og er meðal annars búin að klífa Esjuna, Háahnjúk, Geirmundartind og hefur komist að því að hún hefur svo sannarlega áhuga á fjallgöngum, ólíkt því sem hún taldi sér trú um áður fyrr. „Ég er léttari á vigtinni en líka í lund, sem er ómetanlegt. Ég hef sett mér lítil markmið með verðlaunum við hver 5 kílóin. Mér finnst endalaust gaman að kaupa sér nýja skó, fara í klippingu og svo framvegis með þá tilfinningu að maður eigi það skilið. Þetta eru alger kaflaskipti í lífinu og ótrúlega gaman að kynnast sjálfri sér upp á nýtt."TT-námskeiðin JSBRæktin er til að þú njótir lífsins betur - viðtal við Báru.
Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fleiri fréttir Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Sjá meira