Einbeittur brotavilji í miðbænum - daglegar skemmdir á listaverki Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 17. júlí 2013 22:33 Verkið var áður tjörn en eitt skemmdarverkanna fól í sér að einhver fjarlægði tappann úr tjörninni, sem var þó kirfilega fastur. Því segir Sigurður skemmdarverkin einkennast af einbeittum brotavilja.
Skúlptúr sem settur var upp til þess að lífga upp á torg við Bernhöftstorfuna í sumar hefur þurft að þola skemmdarverk nánast á hverjum degi síðan hann var settur upp. „Hann hefur orðið fyrir barðinu á miðbænum,“ segir Sigurður Arent Jónsson, einn þriggja hönnuða skúlptúrsins. „Við hugsuðum út í það að verkið myndi lenda í einhverju yfir sumartímann en þetta kemur manni í opna skjöldu. Að það sé þjösnast á þessu dag eftir dag það mikið að það sé verið að rífa upp hellur og beygja teina.“ Hann segir öll möguleg skemmdarverk hafa verið unnin á skúlptúrnum. „Það er búið að rífa út setuaðstöðuna, vaða út í tjörnina og rífa upp listaverkið, hreyfa það um allt og kremja boltana sem listaverkið samanstendur af.“ Skúlptúrinn var settur upp í tengslum við verkefni á vegum Reykjavíkurborgar. „Það var lýst eftir áhugasömum hönnuðum og listafólki til þess að taka í fóstur eitt af þessum torgum bæjarins sem hafa fallið í gleymsku og lífga upp á þau í sumarfríinu,“ útskýrir Sigurður.Sigurður Arent Jónsson„Við fengum Bernhöftstorfuna, fólk stoppar ekki mikið þarna og nýtir sér þetta lítið.“ Hann segir verkið greinilega þjóna tilgangi sínum við að draga fólk að en það vanti að gestirnir njóti svæðisins. „Það væri æðislegt ef fólk gæti látið þetta vera næstu vikurnar. Við erum að íhuga það að setja upp eftirlitsmyndavél þarna og hreinlega kæra fólk sem er að skemma þetta enda er um hrein og bein skemmdarverk að ræða.“ Með Sigurði í verkefninu eru Laufey Jónsdóttir og Friðrik Steinn Friðriksson. Segist hópurinn vera í fullri vinnu við að laga listaverkið á hverjum degi. „Við verðum að halda þessu við.“ Sigurður hefur engan grunaðan um skemmdarverkin en finnst þó ólíklegt að þetta séu ferðamenn. „Þetta virðist vera svo einbeittur brotavilji. Ef það er einhver ósáttur við verkið eða hefur einhverjar upplýsingar má sá hinn sami endilega hafa samband við okkur. Markmiðið er að sem flestir njóti svæðisins.“
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Sjá meira