Ruslíbúð á toppverði Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 17. júlí 2013 21:44 Ekki beint smekklegt. MYND/BLAND.IS
Auglýsing sem birtist á Bland.is í dag hefur farið eins og eldur í sinu um netheima síðustu klukkustundir. Þar er auglýst til leigu 55 fermetra „sæt íbúð í hjarta Reykjavíkur“ á 145 þúsund krónur á mánuði. Þá þarf leigjandi að leggja fram tryggingu upp á 435 þúsund krónur. Er það nokkurn veginn í takt við það sem gengur og gerist á leigumarkaðnum í dag. Í auglýsingunni er tekið fram að nýr leigjandi þurfi sjálfur að þrífa og mála íbúðina eftir seinasta leigjanda, og því verði 15 þúsund krónur slegnar af leigunni fyrsta mánuðinn. Þegar myndir af íbúðinni eru skoðaðar kemur svo í ljós að íbúðin er vægast sagt í slæmu ástandi. Rusl flæðir út úr herbergjum og íbúðin er grútskítug. Þegar betur er að gáð bendir ýmislegt til þess að auglýsingin sé einhvers konar ádeila á leigumarkaðinn í dag, en myndirnar eru falsaðar. Heitar umræður hafa skapast í athugasemdakerfinu á Bland.is vegna málsins og á sérstökum umræðusíðum leigjenda á Facebook. Fólk er almennt sammála um að auglýsingin sé grín og líklegt þykir að myndirnar séu erlendar. Aftur á móti telja margir auglýsinguna vera mikilvæga ádeilu á leigumarkaðinn, þar sé ástandið er vægast sagt svart. „Miðað við ástandið á leigumarkaðnum á höfuðborgarsvæðinu kæmi mér ekki á óvart að margir taki þessa auglýsingu alvarlega, þetta er alveg lýsandi fyrir hvernig leigumarkaðurinn er orðinn,“ og „þetta er svo sorglega stutt frá raunveruleika leigumarkaðsins að það er ekki fyndið,“ er meðal þess sem fólk hefur skrifað í athugasemdir við auglýsinguna. Fyrir skömmu var efnt til undirskriftasöfnunar á netinu til að vekja athygli stjórnvalda á ástandi leigumarkaðarins á höfuðborgarsvæðinu. Þar kemur fram að framboð á húsnæði sé í algeru lágmarki og að húsaleiga sé óheyrilega há.Hér má sjá umrædda auglýsingu á Bland.is.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Sjá meira