Forsætisráðherra mælir með alþjóðlegri björgunarmiðstöð á Íslandi Heimir Már Pétursson skrifar 17. júlí 2013 10:50 Sigmundur og Anders funduðu í höfuðstöðvum NATO í gær. Mynd/Nato
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sagði framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins í gær að Ísland vildi taka þátt í þróun bandalagsins varðandi netöryggismál. Þá segir forsætisráðherra að Ísland henti vel fyrir alþjóðlega björgunarmiðstöð á Norðurslóðum. Sigmundur Davíð fundaði með Anders Fogh Rasmussen framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, NATO, í höfuðstöðvum bandalagsins í Brussel í gær, í sinni fyrstu heimsókn til útlanda frá því hann tók við embætti. Forsætisráðherra segist hafa átt góðan fund með Rasmussen og ítrekað að Ísland vildi vinna áfram með NATO að þeim verkefnum sem Ísland hefði komið að innan bandalagsins hingað til. "En jafnframt vildum við taka þátt í þróun NATO sem er auðvitað að taka að sér ný hlutverk í breyttum heimi. Þar er töluverð vinna í gangi varðandi tækni og netöryggismál, allt sem varðar samskiptatæknina og upplýsingar og mikilvægt fyrir Ísland að taka þátt í þeirri vinnu og njóta góðs af þeim vörnum sem NATO byggir upp á því sviði," segir Sigmundur Davíð. Forsætisráðherra segist auk þess hafa rætt málefni norðurslóða við framkvæmdastjóra NATO og mikilvægi þess að byggja upp innviði á Norðurslóðum, ekki hvað síst á sviði leitar og björgunar. "Þar sem ég ítrekaði það sem Íslendingar hafa bent á áður að hjá okkur væri til staðar mikil þekking á þessu sviði og Ísland gæti jafnvel verið hentugur staður fyrir alþjóðlega björgunarmiðstöð," segir forsætisráðherra. Og þá ekki endilega eingöngu í samstarfi við NATO ríki heldur lönd á norðurslóðum almennt. "En það er allt eins líklegt að NATO hefði aðkomu að slíkri starfsemi, með t.d. starfsfólki og tækjabúnaði. En það er auðvitað allt í vinnslu. Aðkoma okkar hins vegar yrði á okkar eigin forsendum en í samstarfi við önnur lönd," sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Sjá meira