Íslendinga-appið kemur í veg fyrir að náskylt fólk rugli saman reytum Hugrún Halldórsdóttir skrifar 14. apríl 2013 19:54
Íslendingabók er nú aðgengileg í snjallsímum þökk sé þremur ungum verkfræðinemum við Háskóla Íslands.Ýmsar nýjungar eru í boði, þar á meðal ein sem kemur í veg fyrir að náskylt fólk rugli saman reytum. Rúmlega 600 Íslendingar hafa nú þegar náð sér í forritið, sem er fyrir Android-síma, en notendur geta einfaldlega rekið saman ættir sínar með því að skella símunum saman. Hönnuðirnir, Arnar Freyr Aðalsteinsson, Alexander Annas Helgason og Hákon Þrastar Björnsson, sem urðu hlutskarpastir í samkeppni Háskóla Íslands og Íslenskrar erfðagreiningar um Íslendingaapp í gær, létu sér þetta ekki nægja og bættu við sérstakri stillingu. Og þá lætur síminn þig vita ef þið eruð of skyld til að fara heim saman, segir Arnar Freyr. Er þörf á þessu? „Ég veit það ekki, kannski hérna heima," segir hönnuðurinn Alexander og bætir við: „Við vorum einmitt með slagorðið bömpaðu í appinu áður en þú bömpar í bólinu." Strákarnir segjast gera sér grein fyrir því að stillingin fari fyrir brjóstið á einhverjum en bæta við að hún sé ágætlega vel falin og hægt sé að nota forritið án þess að taka nokkurn tímann eftir henni. Við vorum að reyna að stíla á bæði yngri og eldri markaðinn. Notendur Íslendingabókar eru meira kannski eldra fólk en notendur snjallsíma yngra fólk, segir Hákon. Í forritinu er ýmislegt annað að finna þar á meðal dagatal með afmælisdögum ættingja og skemmtilega tölfræði. Og fyrir þessi herlegheit fengu strákarnir eina milljón króna í sigurlaun. „Við þurfum að fara að ákveða það á næstu dögum, hvort við ætlum að nota hana saman í eitthvað t.d. eins og stofnfé í næsta verkefni eða bara skipta henni upp og nota hana til að borga reikningana," segir Hákon Þrastar Björnsson og hlær.Hægt er að skoða appið og ná í það hér.
Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira