Starfsfólk fær 4,3 milljarða Þórður Snær Júlíusson skrifar 14. mars 2013 06:00 Umbun starfsfólks Landsbankans má rekja til uppgjörsins milli nýja og gamla Landsbankans frá 2009. Fréttablaðið/Valli
Starfsmenn Landsbankans munu eignast 1,9 prósenta hlut í bankanum miðað við stöðu svokallaðs skilyrts skuldabréfs í bókum hans. Miðað við innra virði hlutafjár Landsbankans er virði hlutarins 4,3 milljarðar króna. Það hefur farið stigvaxandi með auknum hagnaði bankans, en hann nam 25,5 milljörðum króna á síðasta ári. Komist erlendir sérfræðingar að því að skuldabréfið sé meira virði mun hlutur starfsmannanna hækka upp í tvö prósent og verða 4,5 milljarða króna virði. Þetta má lesa út úr nýbirtum ársreikningi Landsbankans. Skilyrta skuldabréfið mun verða gefið út í lok marsmánaðar og þá mun skýrast hversu stóran hluta starfsmenn fá að eignast. Eftir útgáfu skuldabréfsins verður Landsbankinn nánast að öllu leyti í eigu íslenska ríkisins, utan þess hlutar sem mun renna til starfsmanna. Hann verður þá eina fyrirtæki landsins í opinberri eigu sem umbunar starfsfólki sínu fyrir árangur í starfi með því að gefa því hlutafé. Í desember 2009 var tilkynnt um uppgjör milli nýja og gamla Landsbankans. Í því fólst meðal annars að íslenska ríkið eignaðist 81,33 prósenta hlut í bankanum en þrotabúið hélt eftir afganginum. Sú breyting gat orðið á þeirri tilhögun að ef svokallað skilyrt skuldabréf yrði metið á 92 milljarða króna í lok árs 2012 myndi þrotabúið skila hlut sínum gegn útgáfu skuldabréfsins. Sá hlutur átti þó ekki að renna að öllu leyti til ríkisins heldur var samið um að starfsmenn Landsbankans myndu fá tvö prósent af heildarhlutafé hans ef takmarkinu yrði náð og átti sá hlutur að mynda stofn væntanlegs kaupaukakerfis innan bankans. Ekki liggur fyrir hversu mikið hver starfsmaður fær í sinn hlut þar sem bankinn hefur ekki kynnt útfærslu kaupaukakerfisins. Hluturinn átti að vera umbun fyrir árangur starfsmanna við hámörkun á alls átján eignum sem mynda stofn skuldabréfsins. Ljóst er að sú innheimta hefur gengið vel því virði skuldabréfsins var bókfært á 26,5 milljarða króna í árslok 2010. Hefði það verið niðurstaðan hefði hlutur starfsmannanna verið 0,6 prósent. Samkvæmt ársreikningi Landsbankans er virði bréfsins í lok síðasta árs 87,5 milljarðar króna. Þrotabúið metur það hins vegar á 92 milljarða króna og endanleg fjárhæð þess veltur á mati erlendra sérfræðinga á áðurnefndum eignum. Eins og staðan er í dag munu starfsmennirnir því fá 1,9 til 2,0 prósenta hlut í bankanum. Skuldabréfið verður gefið út í síðasta lagi 31. mars. Það verður í evrum, ber fljótandi vexti og með lokagjalddaga í október 2018, tíu árum eftir fall gamla Landsbankans. Greiða verður ársfjórðungslegar greiðslur af því frá og með næsta ári.
Mest lesið „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Innlent Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Fleiri fréttir „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Sjá meira