Minningarstund við tjörnina 14. mars 2013 22:16 Fjöldi manns kom saman við Reykjavíkurtjörn í kvöld.
Fjöldi kerta var tendraður við Reykjavíkurtjörn í kvöld þegar hópur fólks kom saman til að minnast barna sem látið hafa lífið í átökunum í Sýrlandi eða eiga um sárt að binda vegna þeirra. Á morgun eru tvö ár liðin frá upphafi átakanna sem kostað hafa að minnsta kosti 70 þúsund mannslíf. Barnaheill – Save the Children á Íslandi stóðu fyrir minningarstundinni, en álíka viðburðir fóru fram á vegum samtakanna víða um heim í dag. Birgitta Jónsdóttir, þingmaður og baráttukona, flutti nokkur orð við tjörnina og síðan var mínútu þögn til að minnast barnanna. „Börnin eru því miður helstu fórnarlömb þessara átaka," segir Erna Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla. „Þau hafa upplifað skelfilega hluti, misst ættingja og jafnvel horft á þá deyja og við stöndum frammi fyrir því að heil kynslóð verði aldrei söm vegna þeirra hörmunga sem hún hefur gengið í gegnum. Þetta mun hafa mikil áhrif á samfélögin á þessu svæði og við sem alþjóðasamfélag verðum að gera það sem í okkar valdi stendur til að hjálpa þessu fólki og knýja á um að stríðinu ljúki."Á morgun eru tvö ár liðin frá upphafi átakanna sem kostað hafa að minnsta kosti 70 þúsund mannslíf.Save the Children standa fyrir alþjóðlegri undirskriftasöfnun til að þrýsta á öryggisráð SÞ að grípa til aðgerða til að koma á friði í Sýrlandi. Þá er einnig í gangi söfnun til að standa straum af kostnaði við hjálparstarfið sem er gífurlegur að sögn Ernu. „Það er ótvírætt neyðarástand hjá sýrlenskum börnum. Þau eru varnarlaus og hrædd og við verðum að bregðast við," segir Erna að lokum og hvetur alla til að skrifa undir áskorunina og minnir á söfnunarsímana 904 1900 og 904 2900 fyrir þá sem vilja styrkja hjálparstarfið með fjárframlögum.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira