AEG bar ekki ábyrgð á dauða Jackson Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 2. október 2013 23:23 Michael Jackson er einn frægasti söngvari allra tíma. Mynd/Getty Images
Tónleikaskipuleggjandinn, AEG Live LLC, ber ekki ábyrgð á dauða söngvarans, Michael Jackson. Sú var niðurstaðan í dómsmáli sem að kveðin var upp í dag. Það var Katherine Jackson, móðir Michael Jackson, sem lögsótti fyrirtækið AEG Live LLC, sem stóð á bakvið endurkomutónleikaferðalag Jacksons. Hún taldi það vanrækslu af hálfu fyrirtækisins að hafa ráðið lækninn, Dr. Conrad Murray, án þess að skoða bakgrunn hans ítarlega. Murray var sakfelldur árið 2011 fyrir manndráp af gáleysi en hann gaf Jackson of stóran skammt af svefnlyfjum sem leiddu hann til dauða 2 árum áður. Kviðdómurinn í málinu gegn AEG Live LLC komst í fyrsta lagi að þeirri niðurstöðu að fyrirtækið hefði í raun staðið á bakvið ráðningu læknisins. En í öðru lagi komst hann að þeirri niðurstöðu að fyrirtækið hefði ekki mátt vita að Murray var óhæfur til starfsins sem hann var ráðinn í. Þessi niðurstaða þýðir einfaldlega að fyrirtækið ber enga ábyrgð á dauða Michael Jackson. Það hefur alltaf haldið því fram að söngvarinn hafi sjálfur ráðið Murray og að ekki hafi verið hægt að ganga gegn vilja hans. Kviðdómurinn, sem samanstóð af 12 einstaklingum, hóf að ráða ráðum sínum 26. september, 5 mánuðum eftir að réttarhöldin hófust. Réttarhöldin veittu fordæmislausa innsýn inn í einkalíf söngvarans.
Mest lesið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Hvað hafa þau að fela? Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Lífið Emily in Paris-stjarna látin Lífið Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Lífið Hver prjónuð peysa sendi skýr skilaboð til þolenda ofbeldis Tíska og hönnun Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni Lífið Geralt fær nýtt ævintýri rúmum áratug eftir það síðasta Leikjavísir Fleiri fréttir Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum Sjá meira