Það átti að koma Ögmundi út 27. janúar 2013 09:33
Jón Bjarnason segir það réttmæta gagnrýni að Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, vilji aðeins raða já-fólki í kringum sig. Jón gekk sem kunnugt er úr þingflokki Vinstri grænna í vikunni. Hann hefur þó ekki tekið ákvörðun um hvert framhaldið verði hjá sér varðandi stjórnmálaþátttöku. Í viðtali í sunnudagsblaði Morgunblaðsins gagnrýnir Jón störf ríkisstjórnarinnar og segir ágreining hafa verið innan þingflokks Vinstri grænna frá fyrsta degi. Varðandi gagnrýni á Steingrím J. Sigfússon um að hann kjósi að hafa já-fólk í kringum sig segir Jón að fella hafi átt Ögmund Jónasson innanríkisráðherra í prófkjöri VG í Suðvesturkjördæmi. „Þó að allir hafi sama rétt til að bjóða sig fram, var öllum ljóst að það átti að koma Ögmundi út. Þannig að þetta var réttmæt gagnrýni. Steingrímur verður að svara þessu sjálfur, en ég held að það megi vel segja að dæmin tali sínu máli," segir Jón í Morgunblaðinu. Hann segir sína nánustu samherja flesta hafa horfið á braut vegna ágreinings um vinnubrögð og stefnu flokksins. „Atli Gíslason, Ásmundur Einar Daðason, Lilja Mósesdóttir og allir vita hvernig komið var fram við Guðfríði Lilju Grétarsdóttur, þá miklu hugsjóna- og baráttukonu, sem að síðustu sagði af sér þingmennsku. Það þýðir ekkert að segja að þau hafi horfið á braut - af því bara," segir Jón sem ræðir frekar um Atla Gíslason síðar í viðtalinu. „Hann (Atli Gíslason) hefur starfað í vinstri pólitík í áratugi, verið leiðandi í verkalýðsmálum, umhverfismálum og stutt félagsleg sjónarmið lögfræðilega sem málflutningsmaður með yfirburðarþekkingu og reynslu. Að hann skuli finna sig knúinn til að yfirgefa flokkinn ásamt fleirum sem ég nefndi áðan, sýnir að eitthvað er ekki í lagi. Það þýðir ekkert að halda öðru fram," segir Jón í viðtalinu. „Hér var ráðist gegn fólki með mikla þekkingu og reynslu, baráttujöxlum sem segja: Hingað og ekki lengra!"
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent Fleiri fréttir Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sjá meira