Lífið

Bak við tjöldin með Helga Björns

Ellý Ármanns skrifar
Helgi Björns heldur stórtónleikana „Helgi syngur Hauk" með Capital Dance Orchestra í Eldborgarsal Hörpu föstudaginn 11. október. Það er uppselt er á fyrri tónleikana og miðasala er enn í fullum gangi fyrir þá síðari.

Samnefnd plata kemur út í október sem Helgi tók upp í Berlín fyrr á árinu. Í meðfylgjandi myndskeiði sjáum við Helga ásamt þessari mögnuðu þýsku stórsveit við upptökur á myndbandi við hinn sígilda Hauks Morthens slagara „Oft áður ég hef" sem verður að finna á plötunni.

Myndbandið verður frumsýnt hér á Visi á næstu vikum. Sérstakir gestir á tónleikunum verða Sigríður Thorlacius, Bogomil Font og Björgvin Halldórsson.

Þú getur keypt miða á aukatónleikana hér.

 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.