"Árni kryddaði tilveruna á Alþingi" 28. mars 2013 16:46 Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, sleit þingi í nótt. Í ræðu sinni minntist hún þeirra þingmanna sem nú hverfa af þingi. Auk hennar sjálfrar má nefna Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Árna Johnsen, þingmann Sjálfstæðisflokksins. Í ræðu sinni fullyrti Ásta Ragnheiður að traust þjóðarinnar á stofnuninni Alþingi hefði ekki bilað. Langflestir landsmenn hlytu að vera sammála um mikilvægi Alþingi sem grundvallarþáttar í lýðræðisskipan Íslendinga. Þá sagði Ásta Ragnheiður að flokkssystir sín, Jóhanna Sigurðardóttir, hefði alltaf notið álits sem samviskusamur og dugmikill þingmaður. Um kempuna Árna Johnsen sagði Ásta Ragnheiður að hann hefði kryddað tilveruna á Alþingi. Hann hefði farið sínar eigin leiðir, ótroðnar slóðir. Þá hvatti þingforseti til heiðarlegrar kosningabaráttu sem nú er farin í hönd. Ræðuna í heild sinni má sjá hér að neðan. Þeir þingmenn sem kveðja Alþingi og Ásta Ragnheiður þakkaði góð störf: Jóhanna Sigurðardóttir Árni Johnsen Þuríður Backman Birkir Jón Jónsson Ólöf Nordal Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Siv Friðleifsdóttir Atli Gíslason Ásbjörn Óttarsson Lilja Mósesdóttir Tryggvi Þór Herbertsson Þráinn Bertelsson Ræða Ástu RagnheiðarHáttvirtir alþingismenn. Senn lýkur störfum þessa þings sem er hið síðasta á kjörtímabilinu. Hinn 27. apríl nk. rennur út það umboð sem við alþingismenn fengum fyrir fjórum árum. Á þessu kjörtímabili hafa sjónir almennings beinst meira að Alþingi en oftast áður enda hefur þingið þurft að takst á við mörg erfið úrlausnarefni á þessum tíma. Alþingi hefur oftlega sætt harðri gagnrýni og mælingar á viðhorfum almennings til þingsins hafa ekki verið uppörvandi fyrir okkur alþingismenn. Ég leyfi mér hins vegar að fullyrða að traust þjóðarinnar á þeirri stofnun, sem Alþingi er, hafi ekki bilað. Ég tel að langflestir landsmenn séu sammála um mikilvægi Alþingis sem grundvallarþáttar í lýðræðisskipan okkar. Sú pólitíska gróska sem birtist í því að fleiri munu gefa kost á sér til framboðs til Alþingis en nokkru sinni áður er í raun skýr traustyfirlýsing almennings til þessarar stofnunar. Vandinn er hins vegar sá að þegar talað er um stöðu Alþingis og ímynd þess í þjóðfélaginu gera menn engan greinarmun á stofnuninni Alþingi og þeim sem þingið skipa hverju sinni. Að mínu mati snýst neikvæð umræða um Alþingi ekki um stofnunina eða þau lýðræðisgildi sem hún stendur fyrir. Hún beinist fyrst og fremst að þeim sem hingað eru valdir, ákvörðunum þeirra og vinnulagi. Kosningar eru ávallt tímamót.Við lok þessa kjörtímabils munu margir alþingismenn hverfa af þingi. Sumir hafa ákveðið að gefa ekki kost á sér til endurkjörs, aðrir hafa ekki hlotið framgang í prófkjörum og enn aðrir munu ekki ná endurkjöri eins og gerist og gengur. Í þeim hópi alþingismanna sem hafa ákveðið að sækjast ekki eftir endurkjöri er hæstvirtur forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir. Hún er aldursforseti þingsins bæði að þingaldri og lífaldri. Það eru vissulega tímamót þegar forsætisráðherra og þingmaður til 35 ára kveður Alþingi. Hún hefur setið á Alþingi lengst kvenna, þremur kjörtímabilum lengur en sú er næst kemur. Jóhanna Sigurðardóttir hefur sannarlega sett svip sinn á störf Alþingis þann hálfa fjórða áratug sem hún hefur átt hér sæti. Jóhanna hefur ætíð notið álits sem samviskusamur og dugmikill þingmaður. Hún varð fyrst kvenna til að gegna embætti forsætisráðherra hér á landi. Það er vissulega mikilvægur sess í sögunni. Ég veit að ég mæli fyrir hönd okkar alþingismanna allra þegar ég þakka henni fyrir störf hennar í þágu þings og þjóðar og óska henni alls góðs í framtíðinni. Önnur kempa lætur nú einnig af þingmennsku eftir að hafa verið hér með hléum í þrjátíu ár, en það er háttvirtur 9. þingmaður Suðurkjördæmis, Árni Johnsen, sem fyrst tók fast sæti á Alþingi árið 1983, en hann hefur setið alls 20 ár á Alþingi. Árni hefur kryddað tilveruna hér á Alþingi, verið kappsamur þingmaður og löngum farið sínar eigin leiðir, ekki ávallt troðnar slóðir. Ég vil þakka honum löng og ánægjuleg kynni. Þá lætur nú einn varaforseta Alþingis af þingmennsku, háttvirtur 5. þingmaður Norðausturkjördæmis, Þuríður Backman, sem hefur setið á Alþingi í tæp 14 ár ár. Þuríður hefur ætíð sinnt forsetaskyldum sínum af mikilli samviskusemi eins og öllu öðru sem henni hefur verið falið. Samstarf okkar hefur verið mjög gott. Vil ég við þetta tækifæri þakka henni fyrir það. Þrír fyrrverandi varaformenn stjórnmálaflokka láta nú af þingmennsku. Það eru háttvirtur 2. þingmaður Norðausturkjördæmis, Birkir Jón Jónsson, háttvirtur 2. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður Ólöf Nordal og háttvirtur 5. þingmaður Suðvesturskjördæmis, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Birkir Jón hefur setið í 10 ár á Alþingi þótt ungur sé að árum, Ólöf í sex ár og Þorgerður Katrín í 14 ár og þar af á ráðherrabekk í rúm fimm ár. Annar fyrrverandi ráðherra, háttvirtur 6. þingmaður Suðvesturkjördæmis, Siv Friðleifsdóttir, lætur nú einnig af þingmennsku eftir að hafa setið á Alþingi í 18 ár og þar af sem varaforseti Alþingis í 2 ár og á ráðherrabekk í sjö ár. Þessum forustumönnum þakka ég gott samstarf og góð kynni á umliðnum árum. Auk þeirra þingmanna sem ég hef nú nefnt hafa fimm aðrir háttvirtir þingmenn ákveðið að sækjast ekki eftir endurkjöri. Það eru þingmennirnir, Atli Gíslason, Ásbjörn Óttarsson, Lilja Mósesdóttir, Tryggvi Þór Herbertsson og Þráinn Bertelsson. Vil ég einnig þakka þeim fyrir gott samstarf og góð kynni. Ég ítreka þakkir mínar til allra þeirra sem nú hafa ákveðið að láta af þingmennsku og óska þeim alls hins besta í framtíðinni. Þar sem ég er í hópi þeirra þingmanna sem láta nú af þingmennsku vil ég þakka samþingsmönnum mínum fyrir góða viðkynningu og samstarf á umliðnum árum, samstarf sem hefur verið ánægjulegt í hvívetna. Hér hefur mér þótt gott að starfa og ég læt því af þingmennsku með góðar minningar um störf mín hér. Ég hef notið þeirra 18 ára sem ég hef setið á Alþingi, jafnt sem óbreyttur þingmaður, —ráðherra og nú síðast sem forseti Alþingis. Ég hef ekki síst haft mikla ánægju af starfi þingforseta. Það hefur einnig verið óvenjuleg reynsla, og oft erfið á köflum, að gegna því starfi á þeim umbrotatímum sem við höfum lifað síðastliðin fjögur ár. En ég mun sannarlega sakna Alþingis og þeirra er hér starfa. Ég hef leitast við að gegna þessu virðulega embætti eins vel og ég hef getað. Ég hef ætíð haft að leiðarljósi að vera forseti allra alþingismanna enda kjörin með nær öllum atkvæðum til þessa starfs í upphafi. Ég hef því gert mér far um að sýna öllum þingmönnum sanngirni við stjórn þingfunda og almennt við stjórn þingsins, jafnt stjórnarliðum sem stjórnarandstöðu. Í ljósi þeirrar skörpu skila sem hér eru milli stjórnar- og stjórnarandstöðu hverju sinni er þetta ekki alltaf auðvelt verk. Ekki hafa allir alltaf verið sáttir, hvorki stjórn né stjórnarandstaða. Þennan veruleika þekkjum við öll. Pólitískum samherjum mínum hefur stundum fundist ég taka of mikið tilliti til sjónarmiða stjórnarandstöðu. Það er hins vegar sannfæring mín að forseti Alþingis eigi að vera sjálfstæður í störfum sínum og stýra þingstörfum með heildarhagsmuni Alþingis að leiðarljósi en ekki út frá hreinum flokkssjónarmiðum. Ég hef því fylgt því lýðræðissjónarmiði að þótt tryggja eigi að vilji meiri hlutans nái fram, skuli sýna minni hluta þingsins sanngirni og lipurð hverju sinni. Ég heiti á arftaka minn, hver sem hann verður, að halda áfram á þeirri braut. Þegar litið er yfir þann hóp sem hefur ákveðið að hverfa af þingi við næstu kosningar er það mikið umhugsunarefni hversu margar konur, sem verið hafa í stjórnmálaforustu, láta nú af þingmennsku. Ásamt þeirri er hér stendur eru þetta sex konur sem hafa ákveðið að gefa ekki kost á sér til endurkjörs, flestar í blóma lífsins. Þessi staða hlýtur að vera íhugunarefni fyrir íslenska stjórnmálaflokka. Ég þakka alþingismönnum fyrir gott samstarf þann tíma sem ég hef gegnt starfi þingforseta. Að gömlum og góðum sið óska ég utanbæjarmönnum góðrar heimferðar og ánægjulegrar heimkomu og árna ykkur öllum allra heilla. Þau ár sem ég hef gegnt forsetastarfinu hef ég notið einstaklega góðs samstarfs við starfsfólk Alþingis. Fyrir það vil ég nú þakka, skrifstofustjóra þingsins og starfsfólki öllu. Ég vil að lokum heita á alþingismenn og öll þau stjórnmálasamtök sem nú leita eftir stuðningi kjósenda og ganga til leiks með orðsins brand að vopni að heyja góða og heiðarlega kosningabaráttu sem megi verða okkur öllum til sóma.
Mest lesið Óteljandi skiptin sem lögregla hefur þurft að vísa sömu mönnum út Innlent Deilur Repúblikana um Epstein-skjölin magnast enn Erlent Foreldrar ómeðvitaðir um fjárhagstjón barnanna í fjárhættuspilum Innlent Stór jarðskjálfti í Vatnajökli Innlent Skotárás í Bangkok: Skaut fimm til bana og fyrirfór sér Erlent Rok og rigning sama hvert er litið Veður Sjáanlega nóg komið þegar þjóðarleiðtogar taka undir Innlent 64 prósent myndu þiggja gjaldfrjáls þyngdarstjórnunarlyf Erlent Semja um vopnahlé Erlent Segir nýjan viðskiptasamning þann „stærsta í sögunni“ Erlent Fleiri fréttir Óteljandi skiptin sem lögregla hefur þurft að vísa sömu mönnum út Vara fólk við því að ganga á nýrunnu hrauninu Stór jarðskjálfti í Vatnajökli Foreldrar ómeðvitaðir um fjárhagstjón barnanna í fjárhættuspilum Sjáanlega nóg komið þegar þjóðarleiðtogar taka undir Eldur í yfirgefnu húsi í Borgartúni Tvítugur Akureyringur með rafskutluleigu fyrir ferðamenn Þekktum Íslendingum lögð orð í munn með gervigreind Fulltrúar minnihlutans á einu um að tollarnir hafi ekki verið ræddir Gervigreind leggur Íslendingum orð í munn, bátabruni og veðrið um versló Atvinnubílstjóri með farþega undir áhrifum áfengis í vinnunni Segir áhyggjuefni að ESB hafi platað Íslendinga í tíu ár „Ökum slóðann” – Átaksverkefni gegn utanvegaakstri Erlendur ferðamaður lést við Hrafntinnusker Meðvitundarlaus maður sóttur í Silfru Segir Guðlaug fara með rangt mál: „Hvimleið þessi valkvæða hlustun stjórnarandstöðunnar“ Bátar brenna í Bolungarvík Utanríkisráðherra segir stjórnarandstöðuna fara rangt með mál „Fór algjörlega fram úr björtustu vonum“ Tekist á um Evrópumálin Merkúr Máni sótti brons í Ólympíukeppninni í líffræði Leigubíll án verðmerkingar og veitingastaðir í óleyfi Virknin minnkað þó áfram gjósi Tjald vonarinnar brann til kaldra kola Skötumessur Ásmundar Friðrikssonar gefa vel af sér „Þá er samkeppnishæfnin farin, það segir sig bara sjálft“ Líkamsárás í farþegaskipi „Kaldar kveðjur frá ESB“ og tilfinningaþrungin stund á Druslugöngu Hvalfjarðargöng opin á ný „Það er verið að taka aðeins of mikið“ Sjá meira