Fluguveiði yfirvarp fávísra einstaklinga Garðar Örn Úlfarsson skrifar 13. apríl 2013 07:00 Fiskurinn í Þingvallavatni hefur flutt sig undan botnlægum slýþörungum sem lagt hafa undir sig fyrri veiðistaði á grunnslóð, segir Guttormur P. Einarsson. Mynd/Úr einkasafni „
Á síðasta áratug hafa breytingar í umhverfinu og í lífríki vatnsins vakið ugg hjá okkur og hefur sú þróun stigmagnast á síðustu árum, með vaxandi ánauð vegna umgengni í garðinum og við vatnið,“ segir Guttormur P. Einarsson, einn helsti sérfræðingur landsins í stangveiði við Þingvallavatn. Guttormur lýsir viðhorfum sínum í hvatningarbréfi til Ólafs Arnar Haraldssonar þjóðgarðsvarðar fyrr í vikunni. Guttormur segir langt síðan bera fór á auknum svifgróðri þörunga sem skyggðu vatnið, samfara ört vaxandi og botnlægum slýþörungum sem spilli veiðistöðum á grunnslóð. „Fiskurinn hefur því flutt sig á aðra staði þar sem botnlægt æti hefur enn griðland,“ segir Guttormur. Í mörg horn sé að líta eigi að bregðast við. „Það er fortakslaus nauðsyn að halda úti strangri vakt á svæðinu og gæta þannig að tilhlýðilegri umgengni í garðinum og við vatnið.“ Þá segir Guttormur veiðar með spæni og maðki barnaglingur. „En hvers konar feitmeti í agni beinist alfarið gegn urriðanum, konungi vatnsins sem á erfitt uppdráttar og því ódrengilegt grimmdarverk fávísra og vanþroska einstaklinga. Eftirlit gegn því er vandaverk, því gjarnan er pukrast með þá tilburði, svo sem af ákafamönnum af erlendum uppruna, sem staðnir hafa verið að veiðum með fjölmörgum beitustöngum, földum á bakkanum í grasi og kjarri, en látast samtímis ástunda fluguveiðar sem yfirvarp,“ fullyrðir Guttormur. „Eins er það ósæmandi af tilteknum fluguveiðimönnum sem herjað hafa á síðustu árum á urriðann snemma vors, þegar hann hopar úr Öxará eða frá öðrum hrygningarstöðum, og liggur á leirunum úti fyrir árósnum til að jafna sig eftir vetrardvöl í straumvatninu,“ heldur Guttormur áfram. „Með því að vaða út leirurnar komast þessir menn í námunda við legustaðinn og ginna soltna og aflvana fiskana með girnilegum straumflugum.“ Bréf Guttorms til Þingvallanefndar má lesa í heild sinni á Veiðivísi á visir.ismynd/hinrik
Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira