"Þetta er alls ekki sanngjarn samanburður" Jóhannes Stefánsson skrifar 13. júní 2013 13:45 Það er ekki sami hluturinn náttúrulegur sykur eða hvítur, unninn sykur. Mynd/Gyða Ölvisdóttir
Mynd sem sýnir sykurmagn ýmissa drykkjarvara hefur farið sem eldur í sinu um netið. Næringarfræðingurinn Steinar B. Aðalbjörnsson segir samanburðinn villandi. „Eins og ég held að þessi mynd hafi verið sett upp þá hafa verið settið sykurmolar við vöruna sem eiga að sýna magnið af sykri í henni. Það er rangt að gera það svona og slíkur samanburður er villandi. Það er vegna þess að í sumum vörum er sykurinn náttúrulega til kominn, eins og til dæmis í öllum mjólkurvörum sem náttúrulegur mjólkursykur og hreinum ávaxtasöfum. Það þekkist þó auðvitað alveg að í sumum þessara drykkja er mikill viðbættur sykur. Það verður hins vegar að bera þessi matvæli saman undir réttum formerkjum." Steinar segir talsverðan mun á sykri sem komi fyrir náttúrulega og öðrum, hvítum viðbættum sykri. „Þessi náttúrulegi sykur í hóflegu magni hefur ekki sömu skaðlegu áhrifin á hjarta og æðakerfið eins og venjulegur hvítur unninn sykur, eins og er til dæmis í kók. Ávaxtasykurinn hefur ekki sömu bólgumyndandi áhrif og jafn mikið magn af hvítum sykri. Það er að segja, ávaxtasykur hefur ekki þessi skaðlegu áhrif ef að magnið er hóflegt." Steinar segir allan sykur hafa sömu skaðlegu áhrifin í miklu magni. „Sykur er reyndar bara þannig að það er eiginlega sama hvaðan sykurinn kemur, í of miklu magni hefur hann slæm áhrif á hjarta og æðakerfi. Hann veldur bólgum í hjarta og æðakerfi sem leiða líklega til þess að fólk fái einhverskonar hjarta- og æðasjúkdóma eins og þrengingar í æðar og svo framvegis."Allur sykur hitaeiningaríkur Steinar bætir svo við um ávaxtasykur: „Óhófleg neysla á ávaxtasykri, hvaða sem hún kemur, leggur mikið álag á lifrina. Lifrin getur orðið fitug og hætt að starfa eðlilega. Þú getur þannig fengið lifur sem er ekkert ósvipuð því sem þekkist hjá alkóhólistum." Hann bendir einnig á að allur sykur er eins að því leyti að hann er hitaeiningaríkur og það þarf að hafa í huga, hvort sem hann er náttúrulegur eða ekki. „Ef þú drekkur of mikið af sykurríkum vörum þá skiptir engu máli hvort þetta er hvítur sykur eða ávaxtasykur. Þá ertu einfaldlega að fá of mikið. Þetta er vont upp á hitaeiningarnar að gera og það er erfiðara að halda sér í réttu holdarfari." Steinar segir neyslu ávaxta nánast undantekningalaust í lagi. „Það er hinsvegar akkurat ekkert að því að neyta ávaxta nánast í hvaða magni sem er. Í ávöxtunum eru líka trefjar sem að minnka áhrif sem ávaxtasykurinn hefur á blóðsykurinn. Þá ertu líka að fá önnur næringarefni með eins og prótein, önnur flóknari kolvetni, vítamín og steinefni. Það er fullt af vörum í náttúrunni sem eru hollar og sykurríkar en verum ekki að bæta við viðbótarsykri, það er algjör óþarfi," segir Steinar.
Mest lesið Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent „Skráningum rignir inn“ Innlent „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Innlent Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Innlent Klifu á topp Empire State-byggingarinnar Erlent Fleiri fréttir Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Sjá meira