Börn fái ekki mengaðan fisk Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 20. júlí 2013 08:00 Krakkarnir í mötuneyti Háteigsskóla þurfa ekki að óttast að boðð sé upp á mengaðan fisk, ólíkt nemendum annars staðar á Norðurlöndunum. fréttablaðið/Anton
Sænska matvælastofnunin hefur sent leikskólum og skólum í Svíþjóð ný fyrirmæli þar sem segir að Eystrasaltssíld eigi alls ekki að bera á borð fyrir börn. Feitur fiskur sem veiddur er í Eystrasalti inniheldur oft dioxín yfir hættumörkum Evrópusambandsins, ESB. Á fréttavef Dagens Nyheter er haft eftir Pontus Elvingsson, sérfræðingi hjá stofnuninni, að þar sem vitað sé að það sé skaðlegt fyrir börn og konur á frjósemisaldri að borða feitan fisk úr Eystrasalti oftar en tvisvar til þrisvar á ári sé alveg eins gott að skólarnir kaupi hann alls ekki. Villti laxinn í Eystrasalti er svo mengaður af díoxíni að Svíar mega ekki flytja hann út til ESB-landa. Fyrr í sumar greindi sænska sjónvarpið frá því að laxinn hefði verið seldur í miklu magni til margra landa, meðal annars til Frakklands. Rannsókn fréttamanna sænska ríkissjónvarpsins leiddi í ljós að að minnsta kosti þrjú sænsk fyrirtæki hefðu flutt út hundruð tonna af Eystrasaltslaxi ólöglega. Samkvæmt kvittunum sem sænska ríkissjónvarpið vitnaði í seldi eitt þeirra, Blekingefiskarnars centralförening, yfir 100 tonn af Eystrasaltslaxi til Frakklands á árunum 2011 og 2012. Talsmaður þesss, Per Ahlgren, sagði í viðtali við sænska sjónvarpið að ekki væri hægt að selja laxinn í Svíþjóð. Frakkland og Danmörk hefðu verið einu löndin sem hefðu viljað kaupa laxinn. Ahlgren sagði viðskiptavini sjálfa hafa tekið sýni úr laxinum og niðurstöðurnar verið þær að dioxínmagnið hefði ekki verið svo mikið. Þess vegna hefðu menn ekki hikað við að selja laxinn úr landi. Pontus Elvingsson hjá sænska matvælaeftirlitinu kvaðst efast um að rannsóknir viðskiptavinanna væru traustvekjandi. Slíkar rannsóknir væru dýrar og tækju langan tíma. Skyndikannanir gæfu ekki rétta mynd. Elvingsson lagði áherslu á að með útflutningnum væri heilsu neytenda í öðrum löndum stefnt í hættu. Það er mat hans að ólöglegur útflutningur Svía á laxi sé samanburðarhæfur við hrossakjötshneykslið. Neytendur séu látnir standa í þeirri trú að eitthvað sé öðruvísi en það er. Munurinn sé sá að neyslan á fiskinum hafi langvarandi áhrif á heilsu fólks og það sé alvarlegt.Hundruð tonna af laxi hafa verið flutt út ólöglega frá Svíþjóð til ESB-landa. Fréttablaðið/PjeturUndanþágur frá banni ESBMagn díoxíns og díoxínlíkra PCB-efna í Eystrasaltssíld og Eystrasaltslaxi er yfir hættumörkum ESB. Staðfest hefur verið að efnin valdi ýmsum kvillum í dýrum, þar á meðal krabbameini og skaða á ónæmiskerfi og æxlunarfærum. Svíar fengu undanþágu frá banni ESB frá 2002 gegn eiturefnum í fiski. Þeir mega borða og selja fiskinn í Svíþjóð sé þess getið að börn og ófrískar konur eigi ekki að neyta hans oftar en þrisvar á ári. Svipaðar undanþágur gilda í Finnlandi og Lettlandi og þess vegna mega Svíar flytja út fisk úr Eystrasalti þangað.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Fleiri fréttir Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Sjá meira