Tólf ára íslensk brúður Hrund Þórsdóttir skrifar 20. júlí 2013 18:30
Brúðurin mætti á staðinn í skreyttum bíl eins og venjan er, en brúðkaupsgestum brá í brún þegar í ljós kom að um kornunga stúlku var að ræða. Brúðguminn var líka töluvert eldri en hún, eða 47 ára. Brúðkaupið var þó stöðvað í tæka tíð, enda í raun gjörningur á vegum Ungmennaráðs UN Women og sviðslistahóps frá Hinu húsinu. Tilgangurinn var að vekja athygli á barnabrúðkaupum sem tíðkast víða um heim og eru að sögn forsvarsmanna gjörningsins eitt stærsta ofbeldisvandamálið gegn stúlkum í heiminum. „Okkur fannst sniðugt að prófa að setja þetta í íslenskan raunveruleika af því að fyrir okkur er þetta svo fáránlegt að svona ung stelpa væri að giftast einhverjum gömlum karli. Við vildum fá fólk til að hugsa um þetta, því þetta þykir eðlilegt svo víða. 14 milljónir stúlkna undir 18 ára aldri eru giftar, í þvinguðum hjónaböndum. Það eru 39 þúsund stúlkur á dag, 27 á hverri mínútu, sem eru giftar, þvingaðar í hjónaband,“ segir Snæfríður Ólafsdóttir, stjórnarkona í Ungmennaráði UN Women. Markmiðið var sérstaklega að ná til ungs fólks. „Þetta eru jafnaldrar okkar og ég til dæmis hugsa til þess að fyrir átta árum var jafnaldra mín gift. Hún er búin að vera gift í átta ár á meðan ég er búin að fara í framhaldsskóla, háskóla, og klára grunnskóla, á meðan hennar líf stoppar,“ segir Salka Margrét Sigurðardóttir, formaður Ungmennaráðs UN Women. „Allir eiga að láta sig þetta málefni varða og saman skulum við uppræta ofbeldi gegn stúlkum.“
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Sjá meira