Innlent

Hótel rís á jörð Bjarna frá Vogi

Kristján Már Unnarsson skrifar
Fyrsta hótelið í sögu Fellsstrandar í Dalasýslu hefur hafið rekstur. Fjósi var breytt í gistiherbergi og hlaðan varð að stórum veitingasal.

Jörðin Vogur á Fellsströnd er þekktust fyrir Bjarna frá Vogi, alþingismann og rithöfund, sem kenndi sig við hana, og þar er minning hans varðveitt. Bjarni var kunnur fyrir vindla sem hann flutti inn og fyrir nýyrðasmíð; orðið knattspyrna er til dæmis frá honum komið.

Gamli bær Bjarna var í fjöruborðinu, ný bæjarhús risu síðar fjær sjónum en þegar hefðbundinn kúabúskapur lagðist af fyrir áratug eignuðust hjónin Guðmundur Halldórsson og Sólveig Hauksdóttir jörðina. Í fyrra hófu þau að breyta útihúsunum í veitinga- og gistihús, sem þau opnuðu um síðustu jól undir heitinu Vogur sveitasetur.

Í viðtali í fréttum Stöðvar 2 segir Guðmundur viðtökurnar ótrúlega góðar. Fram til þessa hafi gestirnir þó fyrst og fremst útlendingar, Íslendingar viti ekki af þessu, en hann kveðst fyrst og fremst markaðssetja gistinguna á netinu.

Þau ákváðu strax að að hafa aðstöðuna veglega, átján 2ja manna gistiherbergi eru rúmgóð og öll með baði, þarna eru heitur pottur og gufubað, og í veitingasal er hægt að þjóna sjötíu manns til borðs.

Guðmundur vonast til að uppbyggingin efli byggð á svæðinu. Þar hafi verið mikið undanhald síðustu ár og engin nýsköpun verið í gangi. Dæmi um viðsnúning er að kokkurinn og hans kona eru flutt úr Reykjavík og sest að í sveitinni.

Guðmundur segist eiga eftir að koma staðnum á kortið. Fæstir Íslendingar hafi heyrt um Fellsströnd, þótt þarna sé náttúrufegurð og Breiðafjarðareyjar við þröskuldinn.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×