Flest brotin samræði í endaþarm eða leggöng Ingveldur Geirsdóttir skrifar 8. mars 2013 18:41
Flest þeirra barna sem leita til Barnahúss hafa orðið fyrir alvarlegustu gerð kynferðisofbeldis. Eftir því sem börnin eldast verða brotin alvarlegri en því yngri sem þau eru er líklegra að ofbeldismaðurinn sé tengdur brotaþola í gegnum fjölskyldu. Í viðtölum við börn í Barnahúsi eru brot flokkuð í fimm alvarleikastig. Brot á alvarleikastigi eitt og tvö teljast væg en þá er til dæmis verið að tala um þukl á líkama barns utan klæða, brot á alvarleikastigi þrjú flokkast sem gróf eins og snerting á kynfærum barns og fróun. Brot á alvarleikastigi fjögur og fimm teljast mjög gróf en flest brot á börnum sem komu í rannsóknarviðtöl til Barnahúss á árunum 2001 til 2012 teljast sem slík. 19% brota falla undir alvarleikastig fjögur sem er meðal annars tilraun til innþrengingar í kynfæri. 37% brota falla undir hæsta alvarleikastigið sem er fullt samræði við barn í leggöng eða endaþarm. Ólöf Ásta Farestveit forstöðumaður Barnahúss segir að börnin sem verði fyrir alvarlegustu brotunum komi frekar í Barnahús. Líklegast er að kynferðisbrot gegn barni eigi sér stað inni á heimili brotaþola, ofbeldismanns eða á sameiginlegu heimili. Eftir því sem barnið er yngra er líklegra að ofbeldismaðurinn sé tengdur brotaþola í gegnum fjölskyldu og eftir því sem börnin eldast verða brotin oftast alvarlegri. Þetta kemur fram í skýrslu Unicef um ofbeldi gegn börnum á Íslandi sem kom út í gær. Frá janúar 2001 og til júní 2012 komu 1355 börn í rannsóknarviðtal í Barnahús, þar af 1169 stúlkur og 186 drengir. 154 þeirra voru aldrinum þriggja til sex ára og 279 á aldrinum sjö til ellefu ára. Langflest voru á aldrinum tólf til átján ára eða 922.
Mest lesið Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Erlent Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Innlent Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Innlent TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Erlent Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum Innlent Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Innlent Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Innlent Stinningskaldi og súld suðvestanlands Veður Fleiri fréttir Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Sjá meira
Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent
Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent