Innlent

Eldur kom upp á bílaverkstæði

Eldur kom upp á bílaverkstæði að Bygggörðum 8 í Reykjavík nú síðdegis. Þar kviknaði í vinnugöllum og dreifðist eldurinn upp með veggjum.

Starfsmenn á verkstæðinu náðu að berja eldinn niður áður en slökkvilið kom á staðinn.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði var ákveðið að senda einn dælubíl á staðinn.

Slökkviliðsmenn eru nú að reykræsta verkstæðið. Ekkert amaði að starfsmönnum en eldsupptök liggja ekki enn fyrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×