Íslenski boltinn

Gylfi Þór og Sara Björk best í fótbolta árið 2013

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sara Björk og Gylfi Þór.
Sara Björk og Gylfi Þór.
Knattspyrnusamband Íslands hefur birt niðurstöður leikmannavals sambandsins um þær þrjár knattspyrnukonur og -menn sem sköruðu fram úr á árinu sem senn er á enda.

Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Tottenham, hafnaði í efsta sæti karlamegin. Kolbeinn Sigþórsson, framherji Ajax, varð í öðru sæti og Alfreð Finnbogason, framherji Heerenveen í þriðja sæti.

Sara Björk Gunnarsdóttir, miðjumaður Malmö, varð í efsta sæti hjá konunum. Guðbjörg Gunnarsdóttir, sem samdi við Potsdam í Þýskalandi á dögunum, í öðru sæti og Þóra Björg Helgadóttir, markvörður ársins í sænsku deildinni með Malmö, varð þriðja.

Umfjöllun um hvern leikmann fyrir sig má sjá hér að neðan.

Gylfi Þór Sigurðsson var svo sannarlega einn af lykilmönnum íslenska landsliðsins á árinu sem náði frábærum árangri í undankeppni HM 2014. 

Gylfi skoraði mikilvæg mörk, t.a.m. bæði mörkin í sigri á Slóveníu á útivelli og svo gegn Kýpur á heimavelli og lagði einnig upp mikilvæg mörk fyrir félaga sína.  Hann lék 8 af 10 landsleikjum Íslands á árinu og skoraði þrjú mörk. 

Gylfi leikur með Tottenham í ensku úrvalsdeildinni, sem missti naumlega af sæti í Meistaradeild UEFA á síðasta keppnistímabili. Félagið var stórtækt á leikmannamarkaðnum fyrir þetta tímabilið, en Gylfi hefur leikið í 12 leikjum af 16 í ensku úrvalsdeildinni þegar þetta er skrifað. 

Þar af eru 7 í byrjunarliði og hefur Gylfi skorað 3 mörk í þessum leikjum og er næstmarkahæsti leikmaður Tottenham.  Þá hefur Gylfi leikið mikið í öðrum keppnum t.d. í Evrópudeild UEFA þar sem Tottenham hefur tryggt sér sæti í 32-liða úrslitum.



Mynd/Vilhelm
Kolbeinn Sigþórsson heldur uppteknum hætti í markaskorun með landsliðinu, en hann skoraði 5 mörk í 9 landsleikjum á árinu, þar á meðal markið gegn Noregi ytra sem gulltryggði Íslendingum sæti í umspilsleikjunum gegn Króatíu. 

Hann hefur nú skorað 13 mörk í 20 landsleikjum sem er magnaður árangur.  Kolbeinn missti af hálfu síðasta tímabili vegna meiðsla, en skoraði engu að síður 7 mörk í 15 deildarleikjum fyrir Ajax sem varð hollenskur meistari. 

Hann byrjaði þetta tímabil af krafti, hefur skorað 6 mörk í 14 deildarleikjum þegar þetta er skrifað, en meiddist í fyrri umspilsleik Íslands og missti því af nokkrum leikjum.

Mynd/Vilhelm
Alfreð Finnbogason var í stóru hlutverki hjá landsliðinu, lék í 8 landsleikjum á árinu og skoraði eitt mark, gegn Slóveníu á heimavelli. 

Alfreð sló svo sannarlega í gegn með hollenska liðinu Heerenveen á síðasta tímabili, endaði það með 24 mörk í 33 leikjum og varð þriðji markahæsti leikmaðurinn í hollensku deildinni. 

Alfreð hefur svo sannarlega haldið uppteknum hætti á þessu tímabili, því þegar þetta er skrifað er hann markahæsti leikmaðurinn í hollensku deildinni með 16 mörk í 14 leikjum.  Orðspor Alfreðs hefur farið víða og þessa dagana er hann eftirsóttur af mörgum félögum í Evrópu og verður spennandi að fylgjast með framtíð hans.



Nordicphotos/AFP
Sara Björk Gunnarsdóttir var sem fyrr í lykilhlutverki í íslenska kvennalandsliðinu sem komst í 8-liða úrslit í úrslitakeppni EM sem fram fór í Svíþjóð.  Þetta er besti árangur kvennalandsliðsins, sem hafði áður komist í úrslitakeppni EM í Finnlandi árið 2009. 

Sara lék í 12 af 13 landsleikjum Íslands á árinu og skoraði í þeim 2 mörk.  Landsleikirnir eru því orðnir alls 66 og mörkin í þeim 14, en Sara er aðeins 23 ára. 

Sara lék sem fyrr stórt hlutverk í félagsliði sínu, Malmö i Svíþjóð, og fagnaði þar meistaratitlinum í annað sinn á þremur árum.  Sara skoraði 8 mörk í 20 leikjum með Malmö sem vann sænska titilinn sannfærandi, tapaði aðeins einum leik af 22 í deildinni. 

Sara var ein af þremur sem tilnefnd var besti miðjumaður deildarinnar á síðasta tímabili.

Guðbjörg Gunnarsdóttir sló í gegn í úrslitakeppni EM í Svíþjóð þar sem hún varði mark Íslands í öllum fjórum leikjunum.  Hún þótti standa sig frábærlega í keppninni og átti stóran þátt í því að Ísland komst í 8-liða úrslitin. 

Guðbjörg lék í 7 landsleikjum af 13 á árinu og eru landsleikirnir orðnir 28 í heildina.  Hún lék með Íslendingaliðinu Avaldsnes í norsku deildinni, en nýliðarnir höfnuðu í fjórða sæti auk þess að komast í bikarúrslitaleikinn þar sem þær biðu lægri hlut gegn Stabæk.  Guðbjörg var aðalmarkvörður liðsins og lék í 21 af 22 deildarleikjum. 

Nú fyrr í mánuðinum skrifaði svo Guðbjörg undir samning við þýska stórliðið Turbine Potsdam sem er eitt allra sterkasta félagslið heims.



Mynd/Heimasíða Malmö
Þóra Björg Helgadóttir er einn leikreyndasti leikmaður Íslands, en hún lék sinn 99. landsleik á árinu og lék í 7 af 13 landsleikjum ársins. 

Þóra hóf árið með því að leika með Western Sidney Wanderers í Ástralíu en átti frábært tímabil með Malmö í Svíþjóð.  Þar fagnaði hún sínum þriðja meistaratitli á fjórum árum og fékk aðeins á sig 13 mörk í 21 leik í deildinni. 

Þóra bætti svo um betur og var valinn besti markvörður sænsku deildarinnar, annað árið í röð en óumdeilt er að sænska deildin sé ein sú sterkasta í heiminum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×