Innlent

Læst inni í litlum klefa allan daginn

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Aðalsteina Kjartansdóttir, önnur  íslenska stúlkan, sem var handtekin fyrir að smygla kókaíni til Tékklands, segir í viðtali við DV að hvorki hún né hin stúlkan, Gunnhildur Svava Guðmundsdóttir, vilji ræða það hver skipulagði smyglið.

Lögreglan talaði um að stúlkurnar væru fórnarlömb reyndra glæpamanna þar sem allt benti til þess að smyglið væri þaulskipulagt.

Fyrst var rætt um málið í fréttum Stöðvar 2 í fyrra. Þar kom fram í samtali við föður annarrar stúlkunnar hefðu þær sagt fjölskyldum sínum að þær ætluðu í frí.



Dómurinn áfall


Stúlkurnar sátu í ár í gæsluvarðhaldi en dómur yfir þeim var kveðinn upp 13. nóvember. Aðalsteina fékk 7 ára dóm og Gunnhildur 7 og hálft ár.

Hún segir að það hafi verið mikið áfall að fá sjö ára dóm. Dómurinn var mun þyngri en búist var við og mjög þungur miðað við sambærileg mál og aldur stúlknanna. Stúlkurnar brotnuðu niður og voru báðar leiddar grátandi í dómsalinn.

Í samtali við Stöð 2 sagði Þórir Gunnarsson ræðismaður að enginn hefði búist við svona löngu dómi. „Sálfræðingurinn sagði við réttarhöldin að það væri ekki gott fyrir þær að vera svo lengi í fangelsi, þetta væru bara börn,“ sagði hann.

„Ég gæti bara dáið,“ segir Þórir að stúlkurnar hafi sagt þegar dómurinn féll, og endurtekið í sífellu „guð minn almáttugur.  „Ég talaði strax við verjandann þeirra og við ákváðum að áfrýja strax.

Aðalsteina segist hafa lært af reynslunni og hún hafi þroskast mikið. Hún óskar sér helst að komast heim til Íslands. Móðir hennar sagði í samtali við Stöð 2 að stúlkurnar hefðu gert rangt og þær ættu að taka út sína refsingu en að dóttir sín eigi að taka út refsingu á Íslandi.

Lumar sér undir teppi á daginn til að hlýja sér

Lífið í fangelsinu er ólíkt öllu því sem maður á að venjast. Aðalsteina er allan daginn læst inni í litlum klefa sem hún deilir með annarri stúlku, þær fá mat og heitt vatn í gegnum lúgu.  

Hún fær að fara út í einn og hálfan klukkutíma á dag með samföngum sínum. Hún fær að fara í sturtu tvisvar sinnum í viku ásamt þremur öðrum í einu.

Föngum er gefið að borða og drekka en annars þurfa þær að sjálfar að útvega nauðsynjavöru eins og klósettpappír og sápu. Fangarnir mega ekki liggja undir sæng á daginn en Aðalsteina segist stundum luma sér undir teppi því klefinn er frekar kaldur og lítið pláss til að hreyfa sig.

Hún segist lesa mikið og hún skrifi mikið til mömmu sinnar. Hún reyndi að skrifa dagbók en þá fór hún bara að skrifa aftur og aftur það sama því ekkert breytist í fangelsinu.


Tengdar fréttir

Íslensku stúlkurnar í 7 ára fangelsi

Íslensku stúlkurnar tvær sem voru teknar með um þrjú kíló af kókaíni á alþjóðaflugvellinum í Prag í Tékklandi voru dæmdar 7 og 7 og hálfs árs fangelsi nú rétt í þessu.

Vill að stúlkurnar taki út refsingu á Íslandi

"Stúlkurnar gerðu rangt og þær eiga að taka út sína refsingu.“ Þetta segir móðir stúlku sem var í dag ásamt vinkonu sinni dæmd í sjö ára fangelsi fyrir fíkniefnasmygl í Tékklandi.

Búist við dómi yfir stúlkunum í Prag í dag

Búist er við því að dómur falli í dag í máli tveggja íslenskra stúlkna sem handteknar voru fyrir réttu ári á flugvellinum í Prag með um þrjú kílógrömm af kókaíni í fórum sínum. Þórir Gunnarsson, fyrrverandi ræðismaður Íslands í Tékklandi, er viðstaddur réttarhöldin yfir stúlkunum, sem eru nítján ára gamlar.

Búist við vægari dómi í ljósi samstarfsvilja

Dómur fellur í dag í máli tveggja íslenskra stúlkna sem handteknar voru fyrir réttu ári á flugvellinum í Prag með um þrjú kílógrömm af kókaíni í fórum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×