Mannrán í Lundúnum: Konurnar þakka góðgerðarsamtökum Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 22. nóvember 2013 12:42 Konurnar treystu Aneeta Prem þar sem þær höfðu oft séð hana í sjónvarpinu.
Konurnar þrjár, sem lögreglan í Lundúnum bjargaði af heimili í síðasta mánuði þar sem konunum hafði verið haldið nauðugum í 30 ár, þakka góðgerðarsamtökunum Fredom Charity fyrir að vera loksins frjálsar. Þetta kemur fram hjá Guardian. Eins og fram kom í fréttum Vísis í gær er sú elsta 69 ára gömul frá Malasíu, næsta er 57 ára frá Írlandi og sú þriðja bresk og þrítug að aldri. Maðurinn og konan sem voru handtekin vegna málsins eru bæði 67 ára. Parið er breskir ríkisborgarar. Þau hafa nú verið látin laus gegn tryggingu. Lögreglan segir að þessi hrikalega saga sé vitni um að þrælahald sé að aukast á Bretlandi. Aneeta Prem, forstöðumaður góðgerðarsamtakana Freedom Charity, hitti konurnar þrjár í gær. Þrátt fyrir að þær séu að mörgu leyti ekki í góðu ástandi séu þær frelsinu fegnar. Þær tóku utan um Aneeta og hún segir að það hafi verið grátið mikið. Írska konan hafði séð Aneeta Prem í sjónvarpinu þar sem hún talaði um samtökin. Henni fannst hún geta treyst henni og hafði samband við hana í október og sagði að sér og tveimur öðrum konum hefði verið haldið nauðgum í 30 ár. Konurnar héldu áfram að vera í sambandi við góðgerðarsamtökin í gegnum síma. Þær voru þó hræddar um að það kæmist upp um að þær væru að hringja. Aneeta segir að sú ákvörðun hafi verið tekin að sækja þær ekki strax og frekar nýta tíma til að rannsaka málið og fá upplýsingar frá þeim. Eftir 30 ára nauðungarvist voru konurnar líka mjög hræddar og eins og skiljanlegt er eiga þær erfitt með að treysta fólki. Málið er enn í rannsókn en að svo stöddu liggja ekki fyrir neinar upplýsingar um að þær hafi verið beittar líkamlegu eða kynferðislegu ofbeldi.
Mest lesið Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Innlent Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Innlent Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Erlent Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Innlent Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Innlent „Svona rosaleg vanlíðan getur ekki staðið endalaust“ Innlent Fórnarlömb vilja láta loka á Epstein-skjölin Erlent Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Innlent Fleiri fréttir Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Íranar reyndu að stöðva danskt olíuflutningaskip Segir að Repúblikanar eigi að „þjóðnýta“ næstu kosningar Chomsky sagði Epstein að hann dreymdi um Karíbahafseyju Tunglskotinu frestað til mars vegna leka Húsleit hjá X í Frakklandi vegna barnaníðsmynda Fórnarlömb vilja láta loka á Epstein-skjölin Bill og Hillary Clinton samþykkja að svara spurningum um Epstein Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Ákærður í 38 liðum og löng biðröð fyrir utan réttinn í Osló Þrettán ára synti fjóra kílómetra til að bjarga fjölskyldu sinni Rússar gera árásir á orkuinnviði í Úkraínu Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Varpa loksins ljósi á umdeilt samkomulag Epsteins frá 2008 Musk segir spænsk stjórnvöld hyggja á „þjóðarmorð“ Herða lög um brottvísanir: „Yfir á rauðu í von um að ljósið verði grænt“ Birtu nektarmyndir af ungum konum fyrir mistök Fara fram á síbrotagæslu yfir stjúpprinsinum sem var aftur handtekinn í gær Efast um að öll Epstein-skjölin séu ekta „Njósnasjeik“ keypti Trump-félag og fékk flögur Yfirmaður flóttamannastofnunar segir af sér vegna Epstein-tengsla Óvæntur stórsigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum Leystu upp alla stjórnmálaflokka landsins Trump lokar Kennedy-miðstöðinni í tvö ár „vegna endurbóta“ Hinn fimm ára Liam laus úr haldi og kominn heim Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ Dróni hæfði farþegarútu fulla af námuverkamönnum Lést á sjúkrahúsi mánuði eftir harmleikinn Opna landamærin og fjöldi fluttur frá Gasa Sjá meira