Tíska og hönnun

Bláhærð brúður

Þórhildur Þorkels skrifar
Danska söngkonan Nanna Öland, betur þekkt sem Oh Land, vakti athygli er hún gekk í það heilaga á dögunum.

Þórhildur Þorkels deilir brúðarmyndum af söngkonunni á bloggi sínu á Trendnet.is en hún klæddist ekki bara guðdómlegum brúðarkjól heldur litaði söngkonan hárið blátt í tilefni dagsins.

"Oh Land er í miklu uppáhaldi hjá mér og eflaust mörgum ykkar líka. Hún er ekki bara brjálæðislega góð tónlistarkona heldur er hún með einstakan og mjög persónulegan stíl," segir Þórhildur á bloggi sínu. 



Sjá fleiri myndir af þessari fögru brúður hér. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×