Lífið

Segir snjallsíma drepa tilfinningar

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Louis C.K. var gestur Conan O'Brian í þætti hans og talaði um hættur snjallsíma
Louis C.K. var gestur Conan O'Brian í þætti hans og talaði um hættur snjallsíma
Grínistinn Louis C.K. talaði um slæm áhrif snjallsíma á manneskjur í spjallþætti Conan O'Brian fyrir stuttu og þá sérstaklega á börn. Louis sagði símana búa til fjarlægð á milli ljótra orða sem börn geta sagt hvert við annað og áhrifanna sem orðin hafa. Þannig er auðveldara að senda ljót skilaboð en að segja eitthvað ljótt við þann sem stendur fyrir framan þig.

Louis talaði einnig um að fólk sé svo upptekið af því að stara á skjáinn að það valdi erfiðleikum með að lifa í núinu, eiga rólega og hljóðláta stund, og hreinlega upplifa tilfinningar.

„Við þurfum að geta verið við sjálf án þess að vera að gera eitthvað. Snjallsímar hafa tekið þetta frá okkur. Þegar maður er einn í bílnum og fær á tilfinninguna að maður sé aleinn í heiminum þá getur komið dapurleiki yfir mann. En þannig er lífið, það er ótrúlega dapurlegt. Þess vegna eru allir í símanum í bílunum sínum. Ég lít í kringum mig í umferðinni og næstum allir eru í símanum sínum. Og allir eru að drepa aðra með bílunum en ólk er tilbúið að drepa aðra og fórna lífi sínu í staðinn fyrir að þurfa að vera eitt með sjálfu sér í eina sekúndu," segir Louis C.K. meðal annars í þættinum.

Hér fyrir neðan má sjá viðtal Conan O'Brian við grínistann. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.