Tíska og hönnun

Skemmti sér með Williamson og Loreen

Elísabet Gunnars skrifar
Breski fatahönnuðurinn Matthew Williamson og tískubloggarinn Elísabet Gunnars skemmtu sér í Svíþjóð.
Breski fatahönnuðurinn Matthew Williamson og tískubloggarinn Elísabet Gunnars skemmtu sér í Svíþjóð. Elísabet Gunnars
Elísabet Gunnarsdóttir, tískubloggari á Trendnet var viðstödd kynningu á nýrri línu breska fatahönnuðarins Matthew Williamson fyrir sænsku verslanakeðjuna Lindex í Stokkhólmi á dögunum.

Viðburðurinn var hinn glæsilegasti þar sem hönnuðurinn sjálfur var heiðursgestur ásamt blaðamönnum og tískubloggurum. Eurovision stjarnan Loreen sá um að skemmta gestum.

„Viðburðurinn var persónulegur en mjög glæsilegur. Línan var kynnt og boðið uppá forsölu á henni,“ skrifar Elísabet í bloggi sínu á Trendnet.is. 

Sænska söngkonan Loreen sagðist vera Íslandsvinur.

Elísabet festi kaup á nokkrum flíkum úr línunni sem kemur í verslunina hér á landi á föstudaginn. 

Litadýrð og munstur einkenna línuna. 

Elísabet ásamt Lóu og Alberti sem reka Lindex hér á landi og Hugrúnu og Bjarna frá Íslandi í dag sem einnig festi viðburðinn á filmu. 

Sjá fleiri myndir hér. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×