Lífið

Eiginkona dáðasta drengs Íslands í forsíðuviðtali

Ellý Ármanns skrifar
Kristín Soffía Þorsteinsdóttir, eiginkona Ólafs Stefánssonar handboltamanns, er í forsíðuviðtali í nýjasta Eftir vinnu, fylgiriti Viðskiptablaðsins. Hún segir lesendum frá því hvernig það er að láta handboltaferil ráða búsetu, uppvexti sínum og hver ákvað að fjölskyldan skyldi flytja heim til Íslands. 

Ólafur Stefánsson.mynd/valli
Kristín Soffía segir að öfgarnar hafi verið miklar í Katar, þessu litla og einu ríkasta landi í heimi en þar bjó fjölskyldan frá janúar til júní 2013 rétt áður en hún flutti aftur heim til Íslands en Katar var síðasti staðurinn sem Ólafur spilaði handbolta.

Fjölskyldan á góðri stundu. Kristín Soffía, Helga Soffía, Einar Þorsteinn, Stefanía Þóra og Ólafur.
Ævintýri vægast sagt

„Ég hitti einu sinni sheik á bar sem kom akandi að barnum á Harley Davidson mótórhjóli og með konuna sína aftan á hjólinu og lífverði með í för. Hann sagði mér í óspurðum fréttum að hann ætti shíta dýr og fleiri en eitt. Hann sagðist líka hafa átt ljón en hann hafi því miður orðið að skjóta það þegar það réðst á vin hans, ekki fyrr,” segir Kristín Soffía og horfir alvarleg á blaðamann en í augunum sést húmorinn og glettnin en hún heldur aftur af hlátrinum, kannski af kurteisi eða virðingu við sheikinn og vin hans sem ljónið réðst á. 



Í blaðinu er einnig veitingarýni, innlit í fataskápa forstjóra, flottustu svítur Reykjavíkur heimsóttar, tillögur að líkamsrækt fyrir þau sem komast ekki í ræktina, umfjöllun um ferðalög og margt, margt fleira.



Eftir vinnu á Facebook






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.