Skipti Gylfa út vegna „hommastríðs“ Jón Júlíus Karlsson skrifar 7. október 2013 10:12 Dr. Gunni ákvað að skipta Gylfa Ægissyni út sem forsöngvara og fékk Sólmund Hólm í hans stað. Mynd/GVA
Dr. Gunni ákvað að skipta út Gylfa Ægissyni sem forsöngvara í laginu Brjálað stuðlag! sem er komið í spilun. Dr. Gunni greinir frá þessu á bloggsíðu sinni og segir að „gúddvill“ þjóðarinnar í garð Gylfa hafi verið í lágmarki og því hafi hann ákveðið að skipta Gylfa út sem söngvara lagsins. Sólmundur Hólm, eftirherma, skemmtikraftur og ævisagnaritari Gylfa, syngur í hans stað. Ástæðan fyrir skiptunum er sú að Gylfi hefur að undanförnu haft sig í frammi í mótmælum við skipuleggjendur Gleðigöngunar. Gylfi lagði nýverið fram kæru til lögreglunnar á skipuleggjendur hátíðarinnar vegna „klámfenginna orða sem áttu að hafa borist í eyru lítilla barna á Gay Pride 2013“. „Mér finnst Gylfa reyndar frábær sama hvað hver segir (fyrir utan „hommastríðið“ sem ég játa að ég skil bara ekkert í), en svona stríðsmaður er bara einum of vafasamt dæmi til að hægt sé að bera það á borð fyrir æsku landsins. Það ber vott um jákvæða siðferðisafstöðu þjóðarinnar að miklu betra hefði verið fyrir lagið ef Gylfi hefði komið út úr skápnum,“ skrifar Dr. Gunni á bloggsvæði sínu. Texti lagsins fjallaði upphaflega um það þegar Gylfi, í eigin persónu, hittir Fýlustrákinn. Fýlustrákurinn kemur einnig við sögu á fyrri barnaplötu Dr. Gunna og vina hans, Abbababb! sem kom út árið 1997. Viðlag lagsins átti að hljóða eftirfarandi: „Ég heiti Gylfi Ægisson, ég er í stuði lon og don“. Í ljósi þeirrar umræðu sem var í kringum Gylfa á þessum tíma þá ákvað Dr. Gunni að breyta textanum í flutningi Sólmundar Hólm og er hann nú: „Ég heiti Villi Stuðmundsson, ég er í stuði lon og don…“ Dr. Gunni segir að hann hafi í samráði við Gylfa skipt um söngvara. „Með fullu samþykki Gylfa – sem enn er í „hommastríði“ og finnst allt húllumhæið í kringum lagið sprenghlægilegt.“ Hér að neðan má heyra lagið Brjálað stuðlag! sem er komið í spilun. Óhætt er að segja að Sólmundur nái vel að herma eftir Gylfa. Jakob Frímann Magnússon, Bjartmar Guðlaugsson og Mugison syngja einnig í laginu.
Mest lesið „Við unnum í nágrannalottóinu“ Lífið Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Tíska og hönnun „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Lífið Steiney frumsýnir kærastann Lífið Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Lífið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fleiri fréttir „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Sjá meira