Lífið

Ísköld mjólk og súkkulaðikaka getur ekki klikkað

Ellý Ármanns skrifar
Í tilefni af fjórtánda Alþjóðlega skólamjólkurdeginum sem haldinn er fyrir tilstuðlan Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna, standa íslenskir kúabændur með aðstoð Mjólkursamsölunnar, fyrir sýningu á verðlaunamyndum 4. bekkinga, síðustu sex ára, þar sem þeir gera viðfangsefninu mjólk skil á frjóan og skemmtilegan hátt.

Sýningin var formlega sett í Kringlunni fyrir helgi þar sem mjólk í sinni vinsælustu mynd, ísköld með súkkulaðiköku, var í boði fyrir gesti og gangandi og nutu allir veitinganna vel eins og sést á meðfylgjandi myndum.

Gestir og gangandi geta skoðað nokkrar af verðlaunateikningum síðari ára sem eru til sýnis í Kringlunni og Glerártorgi næstu daga.

Smelltu á efstu mynd í frétt til að fletta albúminu í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.