Lífið

Þetta er bókin sem allir eru að tala um

Ellý Ármanns skrifar
Smelltu á þessa mynd til að fletta albúminum.
Smelltu á þessa mynd til að fletta albúminum.
Meðfylgjandi myndir voru teknar á Reykjavík Natura Icelandair hótelinu í morgun þegar FKA konur komu saman til að skyggnast inn í hugarheim Sheryl Sandberg, aðalframkvæmdastjóra Facebook sem er höfundur bókarinnar Stígum fram (Lean in á ensku) sem var lengi vel efst á metsölulista New York Times.



Páll Harðarson forstjóri Kauphallarinnar og Guðrún Bergmann, þýðandi og útgefandi bókarinnar fluttu erindi.  Ingibjörg Gréta Gísladóttir var fundarstjóri. 

Bókin er nú komin út á íslensku í þýðingu Guðrúnar Bergman.
Kolbrún Björnsdóttir fjölmiðlakona birti myndina hér að ofan af bókarkápunni á Facebooksíðunni ásamt þessum texta:

„Ég kaupi mér ýmislegt. En þetta eru bestu kaup mín amk þetta árið. Ef ekki lengur. Ég er ekki hálfnuð með þessa bók en get með sanni sagt að ég hef aldrei á ævinni lesið bók sem hefur haft jafn mikil áhrif á mig. Og hef ég þó lesið þær nokkrar. Ég er korteri frá því að skrifa Sheryl Sandberg innilegt þakkarbréf."

Þessi fyrirlestur (sjá myndskeið) varð til þess að Kolla nældi sér í eintak:



Fjölmennt og sér í lagi góðmennt var á morgunfundinum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.