Ungfrú Heimur í beinni á Stöð 3 á laugardaginn Elín Albertsdóttir skrifar 25. september 2013 14:30 Myndir/Ellý ármanns
Miss World 2013 fer fram á Balí í Indónesíu á laugardag. Stöð 3 mun sýna beint frá keppninni kl. 11.30. Sigríður Dagbjört Ásgeirsdóttir er fulltrúi Íslands. Sigríður Dagbjört Ásgeirsdóttir, 22 ára laganemi, er fulltrúi Íslands í keppninni en hún var kosin Ungfrú Reykjavík 2011 og varð í 3. sæti í Ungfrú Ísland keppninni sama ár. Sigríður varð í 3. sæti í Ungfrú Ísland keppninni árið 2011.Sigríður ertu spennt fyrir úrslitakvöldinu? "Já, ég er virkilega spennt, þetta hefur verið mikil vinna síðastliðinn mánuð. Ég hlakka mikið til að njóta dagsins með stelpunum," svarar hún og bætir við að það hafi komið sér á óvart hversu mikil dagskrá hafi verið alla daga. "Við vöknum snemma á morgnana og erum með dagskrá fram á kvöld. Ég mun líklegast sofa í viku þegar ég kem heim."Stórglæsileg.Frábærar stelpurMegum við búast við að sjá þig í sigursæti? "Ég get ekkert sagt til um það, það eru svo margar frábærar stelpur hérna sem geta vel sinnt því starfi sem Miss World tekur sér fyrir hendur. Í raun er ekkert hægt að spá fyrir um úrslit og oft hefur það gerst að aðili sem ekki hefur verið talinn sigurstranglegur ber sigur úr býtum," segir Sigríður og viðurkennir að hún hafi verið mjög stressuð áður en hún hélt af stað í þetta langa ferðalag yfir að vera þetta lengi í burtu frá fjölskyldu og vinum.Sigríður sigraði Ungfrú Reykjavík.Mikil lífsreynsla "Annars var ég mjög spennt fyrir þessu öllu saman og get sagt í dag að þetta er þvílík lífsreynsla sem ég er að öðlast hér. Það var margt sem ég þurfti að gera áður en haldið var af stað. Farangurinn þurfti til dæmis að endast mér í mánuð. Ég náði þó að koma öllu fyrir í tveimur ferðatöskum sem er heldur lítið miðað við að margar stelpur hérna eru með 7-8 töskur. Ég þurfti meðal annars að hafa með mér íslenska þjóðbúninginn, bók um Ísland, gjöf fyrir góðgerðaruppboð og margt annað." Sigríður segist hafa fengið ítarlegar leiðbeiningar frá Miss World Organisation en einnig fékk hún upplýsingar frá Sigrúnu Evu Ármannsdóttur sem fór í Miss World árið 2011. "Ég á frábæra fjölskyldu sem er búin að aðstoða mig og styðja í þessu öllu saman og fyrir það er ég henni ævinlega þakklát."Hér fagnar Sigríður eftir sigurinn.Heljarinnar veislaMega áhorfendur Stöðvar 3 búast við glæsilegri útsendingu? "Já, ég get sko lofað heljarinnar "show-i". Má nefna rosalega flott dansatriði þar sem við dönsum þjóðdansa frá tíu löndum í okkar eigin þjóðbúningum. Við munum einnig koma fram í indónesískum þjóðbúningum og síðkjólum og sýnt verður myndefni sem búið er að taka upp síðastliðinn mánuð af því sem við höfum verið að aðhafast hér á Balí."15 mínútna frægð Sigríður segir öryggisgæslu mikla. "Við þekkjum orðið hótelið okkar hér á Balí jafnvel og heimili okkar. Alltaf er þó eitthvað skemmtilegt að gera, nú síðast var mini-hæfileikakeppni þar sem hver stúlkan á fætur annarri stóð á fætur og sýndi listir, dans, söng og þess háttar fyrir hópinn. Við látum okkur sjaldan leiðast, enda höfum við um margt að tala, komum frá ólíkum menningarheimum og getum endalaust talað um löndin okkar. Keppnin hefur vakið mikla athygli og okkur hefur verið tekið opnum örmum. Hvert sem við förum mætir fólk okkur með brosi á vör, komið er fram við okkur eins og Hollywood-stjörnur svo þetta eru nokkurn veginn mínar fimmtán mínútur af frægð."Hér er prófíll Sigríðar á heimasíðu Miss World.Stöð 3
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Lífið samstarf Fleiri fréttir „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Sjá meira