Þrælar láta lífið fyrir HM í Katar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 26. september 2013 10:30 Úr umfjöllun Guardian. Mynd/Skjáskot af Guardian
Tugir verkamanna frá Nepal hafa látið lífið í Katar undanfarnar vikur við undirbúningsvinnu fyrir heimsmeistaramótið í knattspyrnu árið 2022. Guardian hefur rannsakað málið og birtir ítarlega fréttaskýringu um málið á myndbandsformi á vef sínum. Auk hinna látnu vinna þúsundir við aðstæður sem falla undir skilgreiningu Alþjóðavinnumálastofnunar (ILO) á þrælahaldi. Samkvæmt gögnum frá sendiráði Nepal í Doha létu í það minnsta 44 verkamenn lífið á tímabilinu 4. júní til 8. ágúst. Rúmlega helmingur lést af völdum hjartaáfalls, hjartabilunar eða slys á verkstað. Undirbúningur fyrir HM 2022 er í fullum gangi í Katar. Verkamenn skipta þúsundum og eru flestir frá Nepal. Fjölmargir fullyrða að þeir hafi ekki fengið laun sín greidd og launum haldið til að koma í veg fyrir að þeir hlaupist á brott. Þá er fullyrt að verkamenn hafi takmarkaðan aðgang að vatni í steikjandi hitanum ytra. Um þrjátíu verkamenn frá Nepal flúðu í sendiráðið í Doha og sóttu um hæli vegna aðstæðna sinna. „Við viljum hætta störfum en fyrirtækið leyfir það ekki,“ segir einn Nepalanna sem starfar hjá Lusail City. Fyrirtækið ber ábyrgð á 90 þúsund manna knattspyrnuleikvangi sem er í byggingu. „Ég er reiður yfir því hvernig fyrirtækið kemur fram við okkur en við erum bjargarlausir. Ég sé eftir því að hafa komið hingað en hvað eigum við að gera?“ Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, hefur ekki brugðist við umfjöllun Guardian þegar þetta er skrifað. Skipuleggjendur heimsmeistaramótsins segja í samtali við BBC að málið verði tekið til skoðunar.Umfjöllun Guardian má sjá hér.
Fótbolti Mest lesið Vann Steraleikana en hefði endað síðastur á Ólympíuleikunum Sport Hafþór reyndi við þyngd sem hefði fært honum tugi milljóna Sport Hvað afleiðingar hefur fallið á West Ham? Fótbolti HM í hættu? Messi meiddist í síðasta leik sínum fyrir HM Fótbolti Tímamót á HM: Enginn leikmaður frá Real Madrid í liði Spánar Fótbolti Sá fyrsti í sögu Formúlu 1 Formúla 1 Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Enski boltinn Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Enski boltinn Stúkan: FH í miklum vandræðum Fótbolti Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu Formúla 1 Fleiri fréttir Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Haukar ósigraðir á toppnum Fram - Þór/KA | Botnslagur í Úlfarsárdalnum ÍBV - Grindavík/Njarðvík | Slagur nýliða sem hafa heillað Öll lið hans á ferlinum í Meistaradeildinni á sama tíma Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Tímamót á HM: Enginn leikmaður frá Real Madrid í liði Spánar Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir HM í hættu? Messi meiddist í síðasta leik sínum fyrir HM Gengi Framara komið skemmtilega á óvart Hvað afleiðingar hefur fallið á West Ham? Como í Meistaradeild í fyrsta skipti í sögu félagsins Stúkan: FH í miklum vandræðum Daníel Tristan lagði upp í tapi Malmö Erfiður dagur á skrifstofunni Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Vestri gæti mætt stórveldi á Þróttarvelli Landsliðskona á von á sínu fyrsta barni Versta byrjun í sögu FH Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Fernandes valinn besti leikmaður tímabilsins Orri á skotskónum Kane með þrennu í úrslitaleik Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Barcelona Evrópumeistari Guðrún vann Íslendingaslaginn og Kristianstad í brasi Sjá meira