Fer á Evrópumeistaramótið í súlufimi Hrund Þórsdóttir skrifar 19. ágúst 2013 18:45
Umgjörð Evrópumeistaramótsins verður hin glæsilegasta og þar verða keppendur af báðum kynjum, frá sex ára aldri og upp úr. Unnið er að því að koma á fót Íslandsmeistaramóti í íþróttinni en á meðan það er ekki til staðar geta allir iðkendur sótt um að komast á Evrópumeistaramótið. Í þetta sinn þótti Ásta bera af. Hún æfði áður jazzballett og fimleika en segir langt síðan. „Ég hef æft í eitt ár og þrjá mánuði. Árangurinn er ótrúlegur, ég get eiginlega ekki lýst honum. Ég gat ekki neitt þegar ég byrjaði. Ég gat varla snúið mér einn hring á súlunni án þess að detta í gólfið,“ segir hún og Sólveig Steinunn Pálsdóttir, sem er einn af eigendum Pole sport og þjálfuru Ástu, segir hana fara í ótrúlegustu stöður og vera fljóta að læra. Sólveig hefur barist fyrir því að kynna íþróttina fyrir almenningi og segir þátttöku í erlendum keppnum stórt skref. Finnst ykkur viðhorf fólks gagnvart þessari íþrótt vera að breytast? „Smátt og smátt, já, alveg klárlega,“ segir Ásta. „Bara með hverjum deginum. Það er alltaf einn og einn sem sér hvað við erum að gera og hugsar, já, þær eru ekki að gera það sem ég hélt þær væru að gera,“ tekur Sólveig undir. Ásta kveðst stundum hafa orðið vör við fordóma gagnvart íþróttinni. „Það svona kemur aðeins af og til, en oftast þegar fólk er búið að sjá mig á súlunni þá hættir það við,“ segir hún. Ásta æfir tíu tíma á viku og það getur tekið á. „Þetta er rosalega erfitt. Ég er yfirleitt uppgefin og öll í marblettum. En það er þess virði,“ segir hún brosandi. Hægt verður að fylgjast með keppninni á síðunni epsu.eu. „Ég er ekki að fara til að sigra, ég er bara ótrúlega stolt af mér að hafa komist inn á mótið og ætla að gera mitt allra besta,“ segir Ásta að lokum.
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Margaret Hamilton er látin Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent Fleiri fréttir Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Sjá meira