"Hann er þjóðkjörinn og það veitir honum sterka stöðu gagnvart þjóðinni" Þorbjörn Þórðarson skrifar 10. júlí 2013 18:30
Forsætisráðherra frétti það fyrst á blaðamannafundi að forsetinn hygðist staðfesta lög um veiðigjöld. Hann telur æskilegt að synjunarvald forsetans verði undir við endurskoðun stjórnarskrár en segist leggja meiri áherslu á auðlindaákvæði. Eftir ákvörðun sína um staðfestingu laga um veiðigjöld sendi forsetinn frá sér frá sér þessa yfirlýsingu. Þar segir forsetinn að lögin feli ekki í sér grundvallarbreytingu á nýtingu fiskveiðiauðlindarinnar en kveði á um tímabundnar greiðslur til ríkisins, það er sköttum vegna nýtingar. Að vísa lögum af því tagi í þjóðaratkvæði væri svo afdrifaríkt fordæmi að víðtækar umræður og afar breiður þjóðarvilji þyrfti að vera á bak við slíka nýskipan í meðferð skattlagningar. Þarna er forsetinn að segja, skattamál eru ekki heppileg mál í þennan farveg.Frétti fyrst af ákvörðun forsetans gegnum fjölmiðla Forsætisráðherra frétti fyrst af ákvörðun forsetans gegnum fjölmiðla eftir blaðamannafundinn á Bessastöðum. „Ég hafði ekki verið í sambandi við forsetann eða fulltrúa hans," segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra. Talsvert fleiri skoruðu á forsetann að beita 26. gr. stjórnarskrár nú en árið 2004 þegar hann beitti 26. gr. í fyrsta sinn og synjaði fjölmiðlalögunum svokölluðu staðfestingar. Núna voru alls 35 þúsund manns sem skoruðu á forsetann. Ef hugtakið „gjá milli þings og þjóðar,“ er mælikvarði á fjölda, svo notað sé orðalag forsetans sjálfs, er sú gjá svo sannarlega til staðar nú. Varð þetta Halldóri Baldurssyni hugleikið í teikningu dagsins í Fréttablaðinu, en þar sveiflar forsetinn sér í gervi Tarsan yfir hina margumræddu gjá með forsætisráðherrann í fanginu. Væntanlega í gervi Jane. Bent hefur verið á að beiting 26. gr. stjskr. sé í raun undirorpin geðþótta eins manns, þ.e forseta Íslands. Þorsteinn Pálsson fullyrti í fréttum Stöðvar 2 í gær að forseti Íslands hefði ekki verið samkvæmur sjálfum sér í beitingu þessa valds þar sem hann hefði alltaf valið nýjar og nýjar röksemdir fyrir beitingu þess. En hvað segir forsætisráðherra? Er hann þeirrar skoðunar að það sé æskilegt að þetta vald sé í höndum eins manns? Forsætisáðherra segir að taka verði með í reikninginn að forsetinn sé þjóðkjörinn og heimild hans til beitingar á 26. gr. verði að skoða í því ljósi. „Hann er þjóðkjörinn og það veitir honum sterka stöðu gagnvart þjóðinni ólíkt kóngafólki eða forseta sem er bara kjörinn af þinginu. Við verðum að hafa það í huga þegar við skoðum áhrif hans en þetta verður eflaust skoðað við endurskoðun stjórnarskrárinnar,“ segir Sigmundur Davíð um endurskoðun 26. gr. Aðspurður segir hann þó þessa grein stjórnarskrárinnar ekki í forgangi við endurskoðun hennar og nefnir ákvæði um auðlindir í þjóðareign í því samhengi.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Sjá meira