"Þetta bara má ekki“ Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 11. júlí 2013 15:40 Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs. „
Þetta er fínt app hjá honum og við erum ekki að setja neitt út á það sem slíkt, en vörumerkið er Strætós,“ segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs. sem krefst þess að höfundur smáforritsins Strætó breyti nafni þess. Árni Jónsson er höfundur forritsins og átti það að auðvelda strætófarþegum að fylgjast með áætlun vagnanna. Forritið mátti sækja ókeypis, en nú hefur Árna borist bréf frá lögfræðingum Strætó bs. þar sem þess er krafist að hann hætti nota nafnið og rauntímaupplýsingar um ferðir vagnanna. „Það að við höfum eitthvað verið að fjargviðrast út í hann þegar hann setti út þetta app, ég kannast nú bara ekki við það,“ segir Reynir og segist ekki hafa hugmynd um það hver hafi gert það fyrir þeirra hönd. „En við fórum í skráningu á þessu, það er ekkert leyndarmál, og við fengum hana viðurkennda.“Árni svaraði ekki Reynir segir að ítrekað hafi verið reynt að ná í Árna símleiðis vegna forritsins en það hafi ekki borið árangur, hann hafi einfaldlega ekki svarað. „Við þurftum á endanum að fara bara í Þjóðskrá og finna heimilisfangið þar og það var eina ráðið okkar, að senda honum þetta bréf.“ Reynir segir Strætó vera vörumerki þó það hafi ekki verið skráð fyrr. „Þetta væri svipað og ef ég myndi stofna lítið blað og kalla það Fréttablaðið. Ég er nú alveg viss um það að þið kæmuð á eftir mér, þannig er það bara. Svo getur hann svo sem sagt að okkar app hafi fengið dræmar viðtökur. Ég veit ekki hvernig hann mælir það,“ segir Reynir og bætir því við að app Strætó bs. hafi verið sótt um 30 þúsund sinnum.Árni Jónsson fékk bréf frá lögmanni Strætó bs.samsett mynd„Þetta bara má ekki“ „Staðreyndin er sú að við teljum okkur eiga tilkall til þessa nafns þó við séum opinber aðili. Þegar okkar viðskiptavinir hringja í þjónustuver okkar til þess að kvarta undan hans appi, þá er fólk greinilega að ruglast á þessu. Hann forritar appið sitt á móti vefsíðunni okkar, en það er ólöglegt. Þetta er svipað því að afrita bók án leyfis. Hann ber fyrir sig að það sé enga skilmála að finna á vefsíðunni okkar. Það eru bara almenn lög um höfundarétt sem gilda í þessu sambandi,“ segir Reynir og að auðvitað geti það vel verið að Árni hafi einfaldlega ekki vitað það, en það sé hins vegar ekki afsökun. „Það er engum heimilt að stela upplýsingastreymi annars aðila, eða nota það án samþykkis viðkomandi. Þetta bara má ekki.“ Frestur Árna til að verða við kröfum Strætó bs. er liðinn og aðspurður hvert næsta skref verði segist Reynir ekki vita það. „Ég bara veit það ekki ef ég á að segja alveg eins og er. Ég fól málið bara þessum lögmanni og hann rekur málið fyrir okkar hönd. Menn verða auðvitað að bregðast við, og ef ekki verðum við eflaust að grípa til einhverra frekari aðgerða, við höfum bara ekki rætt það satt best að segja.“
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Sjá meira