Innlent

Allir á móti þriggja daga helgi

Valur Grettisson skrifar
Borgarráð fékk umsagnir um að færa frídaga til, trúfélögum og stéttarfélögum líst illa á hugmyndina.
Borgarráð fékk umsagnir um að færa frídaga til, trúfélögum og stéttarfélögum líst illa á hugmyndina.
Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins lagði til í maí síðastliðnum að reynt yrði að ná samkomulagi við stéttar- og trúfélög um að færa til staka frídaga starfsmanna Reykjavíkurborgar í miðri viku þannig úr yrði löng þriggja daga fríhelgi.

Fimm skiluðu umsögn, þar af einn einstaklingur, en sá var Snorri Óskarsson, betur þekktur sem Snorri í Betel.

Það er óhætt að segja að umsagnirnar séu á einn veg, engum líst vel á að færa frídagana nær helginni.

Ástæðurnar eru aftur á móti frekar ólíkar.

Þannig segir í umsögn Bandalags háskólamanna að þeir hafi efasemdir um að tilfærsla frídga yrðu til góðs. Að auki gæti komið upp misræmi fyrir barnafólk þar sem foreldri ynni á frídegi barna, en svo væri frí á skóladögum þeirra. Þá benda þeir einnig á að ekki búa allir starfsmenn Reykjavíkurborgar í Reykjavík.

Biskupsstofu þykir hugmyndin óheppileg. Til að mynda vegna uppstigningardags, en í umsögninni segir að sá dagur sé messudagur í flestum kirkjum landsins. Þjóðkirkjan vill því stuðla að því að sem flestir eigi þess kost að sækja kirkju á helgum hátíðum og rækta trú sína og samfélag.

Snorri í Betel er alfarið á móti því að Uppstigningardagur og aðrir frídagar tengdir kristinni trú, verði færðir til. Ástæðan sem hann gefur upp í umsögn sinni er sú að það sé mikilvægt fyrir kristna að eiga sameiginlega daga með guði, og eru þeir dagar, að sögn Snorra, kallaðir „sambandstákn". Hann segir að með því að færa þessa daga rofni ákveðin tenging milli kristinna og guðs. Þá bendir Snorri jafnframt á að með lengri helgi fái fleiri tækifæri til þess að auka áfengisdrykkju sína.

En það er fleirum sem líst illa á hugmyndir borgarfkulltrúans. ASÍ setur meðal annars fyrirvara á hugmyndina. Þá leggst Hvítasunnukirkjan alfarið gegn hugmyndinni, þó ekki eingöngu af trúarlegum ástæðum. Í umsögn þeirra segir meðal annars að það væri undarleg tilhugsun að verkamenn ynnu á 1. maí.

Stjórn Hvítunnukirkjunnar telur að það henti vinnuveitendum betur að slíta ekki vinnuvikuna.

Í lok umsagnarinnar segir svo stjórn Hvítasunnukirkjunnar: „Við teljum því að tillagan sé ekki góð og biðjum um að helgidagar fái að halda helgi sinni.“

Eini frídagurinn sem engin athugasemd er gerð við, eða minnst á yfirhöfuð, er 17. júní.

Borgarfulltrúar Reykjavíkurborgar fara nú yfir umsagnir þessara aðila og hefur málinu því verið frestað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×