Agaleysi í rekstri ríkissjóðs Þorbjörn Þórðarson skrifar 15. júlí 2013 18:30
Ríkissjóður var rekinn með 40,5 milljarða króna greiðsluhalla á síðasta ári. Um þriðjungur fjárlagaliða, það er 142 liðir af 435, fóru fram úr fjárheimildum á árinu, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar. Stofnunin kemur með tillögur til að draga úr agaleysi í rekstri ríkissjóðs. Í skýrslunni sem er um framkvæmd fjárlaga síðasta árs er farið yfir árangur í rekstri ríkissjóðs frá janúar til desember í fyrra. Þar kemur fram að á síðasta ári var ríkissjóður rekinn með 40,5 milljarða króna greiðsluhalla sem er 5,8 milljarða króna lakari útkoma heldur en fjárlög ársins gerðu ráð fyrir. Um þriðjungur fjárlagaliða, þ.e. 142 liðir af 435, fóru fram úr fjárheimildum á árinu og námu frávikin á þeim samtals 13,1 milljarði króna eða 2,3 prósentum af heildarfjárheimild.Hækkanir á fjárheimildum með fjáraukalögum of tíðar og miklar Lengi hefur tíðkast að auka við fjárheimildir fjárlaga með fjáraukalögum þótt heldur hafi dregið úr slíku undanfarin ár vegna þröngrar fjárhagsstöðu ríkissjóðs. Að mati Ríkisendurskoðunar eru slíkar hækkanir á fjárheimildum samt ennþá of miklar til að samrýmast agaðri stjórn ríkisfjármála. Til að bregðast við þessu agaleysi í ríkisfjármálum kemur Ríkisendurskoðun með ábendingar til fjárlaganefndar Alþingis í skýrslunni þar má nefna í fyrsta lagi að auka þurfi aga í fjárlagaframkvæmd og stöðva ítrekaðan hallarekstur stofnana. Í öðru lagi að ráða bóta á uppsöfnuðum halla stofnana sem náð hafa að laga rekstur sinn.Skoða þarf fjárveitingar til FME og Mannvirkjastofnunar Í þriðja lagi að rétta af stöðu fjárlagaliða með neikvætt bundið eigið fé, en þarna á Ríkisendurskoðun við að taka þurfi verklag við mörkun tekna til skoðunar með það fyrir augum að efla útgjaldastýringu ríkisins og koma í veg fyrir að stofnað sé til útgjalda með því að ráðstafa tekjum fyrirfram. Ríkisendurskoðun segir jafnframt að skoða þurfi forsendur fjárveitinga til fjárlagaliða með markaðar tekjur. Þarna tiltekur Ríkisendurskoðun að fjárlaganefnd þurfi sérstaklega að skoða fjárveitingar til Fjármálaeftirlitsins og Mannvirkjastofnunar í ljósi þess hvert teljist vera eðlilegt rekstrarumfang þessara stofnana. Ríkisendurskoðun telur að bæta þurfi áætlanagerð vegna nokkurra fjárlagaliða. Þetta á til að mynda við um fjárlagaliði vegna málskostnaðar í opinberum málum, opinberrar réttaraðstoðar, bóta brotaþola og ríkisábyrgðir. Þá leggur stofnunin til að dregið verði úr viðbótarfjárheimildum í fjáraukalögum. Það er mat stofnunarinnar að til þess að auka á festu í fjárstjórn ríkisins ætti einungis að gera breytingar á fjárlögum með fjáraukalögum ef um er að ræða „ófyrirséð og brýn útgjaldatilefni.“
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Sjá meira