Hvalveiðar halda áfram þrátt fyrir óvissu með flutning á hvalkjöti Hrund Þórsdóttir skrifar 16. júlí 2013 18:50 Undanfarinn sólarhring hafa fjórar langreyðar komið á land í Hvalfirði.
Greint var frá því í fréttum fyrir helgina að flutningar á hvalkjöti frá Íslandi til Japan hefðu verið stöðvaðir, en þangað hafa afurðir langreyða sem veiðast við Íslandsstrendur verið fluttar hingað til. Í kjölfarið ákváðu Samskip að hætta að flytja hvalkjöt til Evrópu, vegna banns á flutninga hvalkjöts um hafnir í Hollandi og þar sem erfitt væri að fá önnur skipafélög til að flytja afurðirnar áfram til Asíu. Fréttastofa fékk staðfest í dag að þessi ákvörðun Samskipa stendur og upplýsingafulltrúi Eimskipa segir að ekki hefði verið leitað til þeirra varðandi flutninga á kjötinu. Flutningar á afurðunum virðast því í lausu lofti en veiðarnar halda engu að síður áfram. Hvalur 8 kom með tvær langreyðar í Hvalstöðina í Hvalfirði í dag og Hvalur 9 kom með aðrar tvær í nótt. Alls hafa verið veidd 50 dýr í sumar. Stöðvarstjóri Hvalstöðvarinnar þvertók í dag fyrir að rætt hefði verið um að fresta eða hætta veiðunum. Kjötið verður flutt til geymslu í Hafnarfirði og sagði hann að nægt geymslurými væri til staðar. Hann vísaði að öðru leyti á Kristján Loftsson, forstjóra Hvals hf. en þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náðist ekki í hann í dag. Hvalirnir voru flensaðir í dag en á meðan ekki er ljóst hvernig afurðirnar verða fluttar úr landi hljóta þær einfaldlega að safnast upp. Í meðfylgjandi frétt er rætt við starfsmenn Hvalstöðvarinnar sem segja engin áform uppi um að hætta veiðunum.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Sjá meira