Ferðamenn hanga á húnunum Heimir Már Pétursson skrifar 18. júlí 2013 15:49
Jakob Frímann Magnússon miðborgarstjóri segir æskilegt að verslanir í miðborginni opnuðu fyrr en nú þar sem ferðamenn hangi margir á húnunum snemma dags. Hins vegar séu í gildi tilmæli til kaupmanna um samræmdan opnunartíma og hafa opið frá klukkan tíu á morgnana til sex á virkum dögum og ellefu til sextán um helgar. Flestar verslanir virði þau tilmæli. Hildur Símonardóttir kaupmaður gagnrýndi í hádegisfréttum Bylgjunnar að margar verslanir opnuðu ekki fyrr en undir hádegi. Jakob Frímann segir borgina ekki geta skilyrt opnunartímann eins og Kringlan og Smáralind geri. „Í miðborginni eru menn frjálsir til þess opnunartíma sem þeim hugnast. En þorri kaupmanna gengst undir það að halda og virða þennan samræmda opnunartíma,“ segir Jakob Frímann. Sumir kaupmenn hafi hins vegar kosið að opna enn fyrr og það sé virðingarvert. Enn aðrir opna aftur á móti ekki fyrr en klukkan ellefu og jafnvel ekki fyrr en klukkan tólf. „Já, það er auðvitað ekki gott þegar fólk virðir ekki þessi tilmæli og veikir samstöðuna sem er mikilvæg,“ segir Jakob Frímann. Þótt borgin geti ekki skyldað kaupmenn til að opna fyrr þætti honum persónulega æskilegt að þeir gerðu það. „Það væri mjög æskilegt ekki síst í ljósi þess að margir erlendir ferðamenn eru mættir fyrir allar aldir og byrjaðir að hanga á húnunum víða. Það mætti gjarnan hafa það í huga þegar opnunartíminn er annars vegar; að það eru viðskiptavinir tilbúnir að mæta miklu fyrr en þessar verslanir bjóða upp á margar hverjar,“ segir Jakob Frímann Magnússon miðborgarstjóri.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Sjá meira