Egyptaland: Herinn skaut á óbreytta borgara við bænahald Hrund Þórsdóttir skrifar 6. júlí 2013 18:47
Yfir 30 manns hafa látist og vel yfir eitt þúsund eru sárir vegna átaka í Egyptalandi í kjölfar þess að herinn steypti forseta landsins, Mohamed Morsi, af stóli á miðvikudaginn. Í meðfylgjandi frétt sjást myndir af því þegar herinn skaut á almenna borgara við bænahald. Ekkert lát er á harkalegum átökum milli stuðningsmanna forsetans fyrrverandi og andstæðinga hans, víða um Egyptaland. Morsi situr í stofufangelsi og allir helstu leiðtogar Bræðralags Múslima hafa verið handteknir. Hávær mótmæli héldu áfram í dag og stuðningsmenn forsetans fyrrverandi söfnuðust saman við mosku Bræðralagsins í Kaíró. Á meðan á látunum stóð héldu réttarhöldin yfir Hosni Mubarak, fyrrum forseta sem hrakinn var frá völdum í byltingunni árið 2011, áfram án þess að valdatakan gegn kjörnum eftirmanni hans hefði þar nokkur áhrif á. Í ófriðarástandinu er enginn óhultur og meðfylgjandi myndir sýna þegar skotið var á stuðningsmenn Morsi þar sem þeir báðust fyrir í borginni El Arish á Sínaískaganum í gær. Sagt er að herinn hafi verið þarna að verki og að sögn Bræðralags múslima særðust 40 manns. Sú tala hefur þó ekki fengist staðfest. Ekki er útlit fyrir að öldurnar lægi í bráð og hafa andstæðingar forsetans fyrrverandi boðað til mótmæla á morgun.
Mest lesið Íslendingur handtekinn á EM Innlent Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Hljóp á sig Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ Innlent „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Innlent Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Erlent Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Innlent Fleiri fréttir Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Sjá meira