Skrýtið að fótboltabullur gegni pólitísku hlutverki Hrund Þórsdóttir skrifar 7. júlí 2013 11:55 "Kynferðisofbeldið hefur verið á Tahrir torgi og þar eru náttúrulega þessir borguðu glæponar eða fótboltabullur gömlu stjórnarinnar. Það er dálítið skrýtið í Egyptalandi að fótboltabullurnar hafa gegnt pólitísku hlutverki í mótmælum," segir Sverrir.
Fréttir bárust af því í gærkvöldi að leiðtogi uppreisnarmanna í Egyptalandi, Mohamed ElBaradei, hefði verið skipaður forsætisráðherra landsins en það var síðan dregið til baka. Formaður Félags múslima á Íslandi segir ljóst að samstaðan innan andstöðunnar sé lítil. ElBaradei er 71 árs og er yfirmaður National Salvation Front, sem eru regnhlífarsamtök uppreisnarmanna í Egyptalandi. Hann var yfirmaður alþjóðasamtaka um kjarnorku og hlaut Friðarverðlaun Nóbels árið 2005, en hann var meðal þeirra sem hvöttu mest til mótmælanna sem urðu til þess að Mohammed Morsi forseti hrökklaðist frá völdum á miðvikudaginn. Skipan hans var dregin til baka í gærkvöldi vegna andstöðu frá Al-Nour samtökunum, sem eru mun öfgafyllri en múslimska Bræðralagið og voru næststærsti flokkurinn í síðustu kosningum, að sögn Sverris Agnarssonar, formanns Félags múslima á Íslandi. „Þetta sýnir bara að samstaðan milli andstöðunnar er ákaflega léleg og með tímanum finnst mér þetta meira farið að líta út eins og samsæri milli hersins og ákveðinna afla innan stjórnarandstöðunnar," segir hann. Hann telur breytingar í loftinu. „Mér sýnist það að margir af þeim sem voru með á þessum fundi sem kom Morsi frá hafi aldrei ætlað sér að koma honum frá heldur knýja fram nýjar kosningar og þetta lið virðist vera að bakka með sínar skoðanir því fjöldinn á mótmælafundum Bræðralagsins núna er miklu meiri en var á Tahrir torgi fyrsta júní." Mótmælin snúast um pólitík en borið hefur á nokkurs konar karnivalstemmningu og mikið hefur verið um kynferðisofbeldi á götum úti. „Kynferðisofbeldið hefur verið á Tahrir torgi og þar eru náttúrulega þessir borguðu glæponar eða fótboltabullur gömlu stjórnarinnar. Það er dálítið skrýtið í Egyptalandi að fótboltabullurnar hafa gegnt pólitísku hlutverki í mótmælum." Sverrir segist óttast mest að Bræðralag múslima verði þvingað neðanjarðar. „Þeir eru að fangelsa leiðtoga þeirra og þá fara þeir bara að vinna eins og þeir hafa alltaf gert, á bak við tjöldin, neðanjarðar og þá er hætt við að öfgaöflin nái yfirhöndinni. Núna eru margir ungir og tiltölulega frjálslyndir menn sem hafa náð áhrifum í Bræðralaginu. Egypska þjóðin skaltu muna, 75% hennar er 27 ára og yngri,“ segir hann að lokum.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Erlent Fleiri fréttir Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Sjá meira